Monday, December 8, 2014

Hitt og þetta í tímaleysi

 
Hef ekki alveg tíma næstu dagana fyrir bloggið, myndatökur, framkvæmdir eða semi jólastúss. Þarf að komast í gegnum eina ritgerð og eitt verkefni og þá er skólastúss þessarar annar lokið.

Note to self! Að taka 3 kúrsa í fjarnámi í opinberri stjórnsýslu og barnvernd við HÍ samhliða 200% krefjandi starfi eftir 10000000% erfiða mánuði...not so smart thinking ;)

Fann því myndir frá því í sumar sem ég nota sem skaðabót næstu dagana fyrir ykkur dásamlegu sem kíkið hér við, vil nú alls ekki missa ykkur í of langan tíma :)

Útbjó svona armbönd í sumar, þá var litagleðin allsríkjandi.



Reyndar fengu nokkur dekkri að fylgja með.


 
 
Búin að vera á "leiðinni" að gera fleiri síðan í sumar en öhhh ekkert gerst í því ;)
 


Hér var ég að byrja skreyta fallega borðið mitt sem ég var svo heppin að fá gefins núna í sumar. Gaman að prufa að hlaða á það alls kyns dóti og verður ekki flókið að skreya næstu misserin.


Jæja elskurnar...ég þarf víst að drösla einni ritgerð af innan tveggja sólarhringa. Tek þetta bara á kæruleysinu og æðruleysinu eins og margt annað núna.

Knús til ykkar og takk fyrir innlitið :)

No comments:

Post a Comment

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.