Saturday, July 20, 2013

Flökkuþráin er skollin á!

Juniorinn verður mættur í Leifsstöð snemma á mánudagsmorgun á leið á danskt fótboltamót og þá langar frúnna svo agalega að skella á sig einum flugmiða!


Væri ekki verra að heimsækja aftur yndislega Japan og litla sæta garðinn sem við flakkaramamma fundum mitt í Tókyó og þessu fallegu blóm glöddu augað...jújú..það eru komin ný ferðaplön en þau verða ekki kunngjörð alveg strax;)

Annars flakkar frúin bara um netheima og skoðar ógrynni af heimilisbloggum og sérstaklega þessi amrrísku inn á milli uppáhalds íslensku síðanna.

Mjög svipaður stíll og þemu á mörgum þeirra og sum heimilin svo falleg vá vá. Er svolítið skotin í þessari síðu hérna The House of Smiths. Þetta eru ung amríssk hjón, allt svo voðalega sætt og bjart hjá þeim, man ekki hvort ég hafi áður minnst á þau. Spurning að nota sem innblástur varðandi frekari heimilishönnun hér og bæta við smá litum á móti öllu þessu hvíta.

Þessi er reyndar tekin af www.pinterest.com en svo svipað og hjá þeim Smiths hjónum.
 

Aðeins farin að bæta smá litum við eldhúsið...nýr borðdúkur gerir alveg helling.

 
 
Svo er mynstrið chevron greinilega svolítið vinsælt á þessum amrrísku heimilisbloggum. Mjög basic sikk-sakk mynstur í ýmsum litum en getur poppað rými svolítið upp t.d. sem púðar, áklæði eða í hinum ýmsu formum.

 
 
 
Er ekki alveg búin að ákveða hvort þetta lúkk passi hér inn í Southfork en gæti verið svolítið smart. Ætla aðeins að pæla í þessu og athuga hvort ekki sé hægt að föndra eitthvað smá með þetta mynstur;)
 
 

Friday, July 19, 2013

Alveg að komast í sumarfrí

Skoooo...það er bara þannig að nú þegar er sumar, amk. hér hjá okkur hérna fyrir austan og norður í landi, að þá fer bloggkraftur í smá lægð amk. á þessari síðu. Er líka búin að velta aðeins fyrir mig hvort þetta blogg megi ekki snúa að fleiru en myndum af sætum kertastjökum og dúllerídóti en kannski nennir enginn að skoða neitt annað? Ekki furða enda er það fyrir okkur sem aðhyllast svoleiðis blogg, bara svo yndislega skemmtilegt. Af hverju..jú þá fær maður hugmyndir og gaman að sjá hvað aðrir eru að gera (já það er alltaf gaman að fylgjast með næsta manni).


Hugmyndin með þessu púkabloggi upphaflega var fyrir vini og ættingja að fylgjast með okkur hérna fyrir austan og voru skrifaðir ansi margir (þó ég segi sjálf frá) skemmtilegir pistlar m.a. af nunnum og dularfullum bókabúðum! Það eru nefnilega ýmsir svo skemmtilegir hlutir sem við upplifum hér í "sveitinni" sem ekki hefðu upplifast í borginni.


Frúin er búin að njóta þess vel að fá loksins gott sumar hérna. Við eigum 5 ára búsetuafmæli hér í lok þessa mánaðar og ég get fullyrt að þetta er besta og fyrsta almennilega góða sumarið sem hingað hefur komið þau ár. Í fyrra komu reyndar nokkrir mjög góðir dagar en sumarið núna er frábrugðið að því leyti að það er sól eða heiðskírt flesta daga. Ausfjarðaþokan sem er erkióvinkona mín hefur ákveðið að vera ekki að glenna sig neitt alltof mikið og um leið og hún lætur sig hverfa þá er hér allt annað líf.

Junior er búin að vera á Álftanesinu fagra síðan í júní og mamman alveg orðin pínu viðþolslaus að hafa hann ekki á svæðinu. Jú, jú hann er orðinn stór unglingur en hann er samt lilla beibí, það er bara svoleiðis!:)

Sumarfrí fer að skella á hér á bæ og þá verður unnið í Southfork og farið í roadtrip áleiðis til borgarinnar - mikið verður það ljúft:) Eins og borgarbarninu þykir óendanlega vænt um höfuðstaðinn og stórborgir yfir höfuð, þá eru nú farin að myndast ágætis vinatengsl við fjöllinn hér og "sveitina".

En hvað segið þið...viljið þið eitthvað vita hvað er í gangi hér í Southfork?

Þar sem frúin hefur ekki farið suður síðan í byrjun júní þá hefur ekkert bæst við af smádótaskrautadótarí en bætum bara úr því fljótlega:)

Eenn það er nóg í gangi en ekki hvað. Staðan núna er þannig að bóndinn er búin að brjóta múrinn af neðri hæðinni, orðinn óþarflega illa farinn (s.s. múrinn, ekki bóndinn) sérstaklega bakvið húsið og frúin, já FRÚIN tók upp múrmolana og skellti í kerru...ok fékk smá hjálp í lokin..en þið skiljið;)


Næst á dagskrá er múrvinna þarna útivið og svo vonandi mála neðri hæðina hvíta. Það verður geggjað að losna við þennan tannkrems-Colgate blágræna lit but all in good time:)


Garð - landscaping felst því bara í sætum blómum í körfum og kertaluktum úti. Fyrst þarf að klára múrdótarí og svo næsta sumar er hægt að byrja að hanna þennan svaðalega fótboltavöll sem fylgir þessu húsi:)



Wednesday, June 19, 2013

Miðvikudagskvöld

 
Ég er týpan sem drep flest blóm og plöntur sama hvað reynt er. Grænir fingur hafa bara aldrei verið til staðar en nú er kannski breyting á....
 
því þessi fallega eldhúsorkedía er farin að blómstra aftur!!!:) Hún var keypt ca. mánuði eftir flutning inn í Southfork snemma síðasta haust. Svo í vor felldi hún öll blóm en auðvitað sprelllifandi. Litlir nabbar fóru að birtast og svo með sólinni sem var hér og allri birtunni í byrjun júní...bamm...svo falleg:) Nú er bara að krossa vonandi græna fingur að hinar tvær lifni við líka, þær virðast eitthvað dauflegri.
 
 
 
Annars bara kerti og rólegheit á þokulegu miðvikudagskvöldi.
 
 
 
 
 
 

Sunday, June 16, 2013

Sólarsunnudagur

 
Sólin er hátt á lofti þennan sunnudaginn á Reyðó. Hitinn tæpar 14 gráður og ekki ský á himni. Tilvalið að viðra aðeins sængur og rúmteppi. Vantar eitt stk. snúrustaur í fótboltavallargarðinn en þangað til er upplagt að nota svalirnar. Útsýnið er líka ekki af verri endanum:)


Junior er farin í útlegðina sína á Álftanesið fallega til tengdó og telur niður í fótboltakeppnisferð til Danmerkur í júlí með gamla liðinu sínu. Byrjaður að skora hægri vinstri, reyndar bara með vinstri löppinni en alsæll á gömlum heimaslóðum.

Bóndinn er að vinna alla helgina þannig við Zelda erum í þvottinum, hreingerningu og útiverudútli í góða veðrinu. Best að drífa sig út í labbi-skokk með dömuna.


Sólarkveðja:)
 
 

Saturday, June 15, 2013

Alls konar eitthvað

 
myndablogg af smotteríi hér úr Southfork.
 

Eitt af mörgum hjörtum á svæðinu.

 
Gleymdi fyrir-mynd af þessum...var gylltur og grænn, geymdur í búrinu fyrir árás spreybrúsans. Nýtist vel undir skart núna:)
 
 
 

Hnífurinn á háaloftinu sem fannst fyrr í vetur er komin í glerkúpladiskinn frá Góða H..smá sprey og bling, aðeins betri.

 
Jebbs...ennþá gardínulaust en bara alls konar annað komið í staðinn.
 

 
 
Alveg eins bakki og á litla sófaborðinu frá Blómaval/Húsasmiðjunni, bara stærri og hvítur.
 
Litli búddinn var keyptur í vor í Japan í fallegu musteri.
 
 
Góða helgi:)