Sólin er hátt á lofti þennan sunnudaginn á Reyðó. Hitinn tæpar 14 gráður og ekki ský á himni. Tilvalið að viðra aðeins sængur og rúmteppi. Vantar eitt stk. snúrustaur í fótboltavallargarðinn en þangað til er upplagt að nota svalirnar. Útsýnið er líka ekki af verri endanum:)
Junior er farin í útlegðina sína á Álftanesið fallega til tengdó og telur niður í fótboltakeppnisferð til Danmerkur í júlí með gamla liðinu sínu. Byrjaður að skora hægri vinstri, reyndar bara með vinstri löppinni en alsæll á gömlum heimaslóðum.
Bóndinn er að vinna alla helgina þannig við Zelda erum í þvottinum, hreingerningu og útiverudútli í góða veðrinu. Best að drífa sig út í labbi-skokk með dömuna.
Sólarkveðja:)




No comments:
Post a Comment
Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.