Wednesday, June 19, 2013

Miðvikudagskvöld

 
Ég er týpan sem drep flest blóm og plöntur sama hvað reynt er. Grænir fingur hafa bara aldrei verið til staðar en nú er kannski breyting á....
 
því þessi fallega eldhúsorkedía er farin að blómstra aftur!!!:) Hún var keypt ca. mánuði eftir flutning inn í Southfork snemma síðasta haust. Svo í vor felldi hún öll blóm en auðvitað sprelllifandi. Litlir nabbar fóru að birtast og svo með sólinni sem var hér og allri birtunni í byrjun júní...bamm...svo falleg:) Nú er bara að krossa vonandi græna fingur að hinar tvær lifni við líka, þær virðast eitthvað dauflegri.
 
 
 
Annars bara kerti og rólegheit á þokulegu miðvikudagskvöldi.
 
 
 
 
 
 

No comments:

Post a Comment

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.