Friday, July 19, 2013

Alveg að komast í sumarfrí

Skoooo...það er bara þannig að nú þegar er sumar, amk. hér hjá okkur hérna fyrir austan og norður í landi, að þá fer bloggkraftur í smá lægð amk. á þessari síðu. Er líka búin að velta aðeins fyrir mig hvort þetta blogg megi ekki snúa að fleiru en myndum af sætum kertastjökum og dúllerídóti en kannski nennir enginn að skoða neitt annað? Ekki furða enda er það fyrir okkur sem aðhyllast svoleiðis blogg, bara svo yndislega skemmtilegt. Af hverju..jú þá fær maður hugmyndir og gaman að sjá hvað aðrir eru að gera (já það er alltaf gaman að fylgjast með næsta manni).


Hugmyndin með þessu púkabloggi upphaflega var fyrir vini og ættingja að fylgjast með okkur hérna fyrir austan og voru skrifaðir ansi margir (þó ég segi sjálf frá) skemmtilegir pistlar m.a. af nunnum og dularfullum bókabúðum! Það eru nefnilega ýmsir svo skemmtilegir hlutir sem við upplifum hér í "sveitinni" sem ekki hefðu upplifast í borginni.


Frúin er búin að njóta þess vel að fá loksins gott sumar hérna. Við eigum 5 ára búsetuafmæli hér í lok þessa mánaðar og ég get fullyrt að þetta er besta og fyrsta almennilega góða sumarið sem hingað hefur komið þau ár. Í fyrra komu reyndar nokkrir mjög góðir dagar en sumarið núna er frábrugðið að því leyti að það er sól eða heiðskírt flesta daga. Ausfjarðaþokan sem er erkióvinkona mín hefur ákveðið að vera ekki að glenna sig neitt alltof mikið og um leið og hún lætur sig hverfa þá er hér allt annað líf.

Junior er búin að vera á Álftanesinu fagra síðan í júní og mamman alveg orðin pínu viðþolslaus að hafa hann ekki á svæðinu. Jú, jú hann er orðinn stór unglingur en hann er samt lilla beibí, það er bara svoleiðis!:)

Sumarfrí fer að skella á hér á bæ og þá verður unnið í Southfork og farið í roadtrip áleiðis til borgarinnar - mikið verður það ljúft:) Eins og borgarbarninu þykir óendanlega vænt um höfuðstaðinn og stórborgir yfir höfuð, þá eru nú farin að myndast ágætis vinatengsl við fjöllinn hér og "sveitina".

En hvað segið þið...viljið þið eitthvað vita hvað er í gangi hér í Southfork?

Þar sem frúin hefur ekki farið suður síðan í byrjun júní þá hefur ekkert bæst við af smádótaskrautadótarí en bætum bara úr því fljótlega:)

Eenn það er nóg í gangi en ekki hvað. Staðan núna er þannig að bóndinn er búin að brjóta múrinn af neðri hæðinni, orðinn óþarflega illa farinn (s.s. múrinn, ekki bóndinn) sérstaklega bakvið húsið og frúin, já FRÚIN tók upp múrmolana og skellti í kerru...ok fékk smá hjálp í lokin..en þið skiljið;)


Næst á dagskrá er múrvinna þarna útivið og svo vonandi mála neðri hæðina hvíta. Það verður geggjað að losna við þennan tannkrems-Colgate blágræna lit but all in good time:)


Garð - landscaping felst því bara í sætum blómum í körfum og kertaluktum úti. Fyrst þarf að klára múrdótarí og svo næsta sumar er hægt að byrja að hanna þennan svaðalega fótboltavöll sem fylgir þessu húsi:)



No comments:

Post a Comment

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.