Væri ekki verra að heimsækja aftur yndislega Japan og litla sæta garðinn sem við flakkaramamma fundum mitt í Tókyó og þessu fallegu blóm glöddu augað...jújú..það eru komin ný ferðaplön en þau verða ekki kunngjörð alveg strax;)
Annars flakkar frúin bara um netheima og skoðar ógrynni af heimilisbloggum og sérstaklega þessi amrrísku inn á milli uppáhalds íslensku síðanna.
Mjög svipaður stíll og þemu á mörgum þeirra og sum heimilin svo falleg vá vá. Er svolítið skotin í þessari síðu hérna The House of Smiths. Þetta eru ung amríssk hjón, allt svo voðalega sætt og bjart hjá þeim, man ekki hvort ég hafi áður minnst á þau. Spurning að nota sem innblástur varðandi frekari heimilishönnun hér og bæta við smá litum á móti öllu þessu hvíta.
Aðeins farin að bæta smá litum við eldhúsið...nýr borðdúkur gerir alveg helling.
Svo er mynstrið chevron greinilega svolítið vinsælt á þessum amrrísku heimilisbloggum. Mjög basic sikk-sakk mynstur í ýmsum litum en getur poppað rými svolítið upp t.d. sem púðar, áklæði eða í hinum ýmsu formum.
Er ekki alveg búin að ákveða hvort þetta lúkk passi hér inn í Southfork en gæti verið svolítið smart. Ætla aðeins að pæla í þessu og athuga hvort ekki sé hægt að föndra eitthvað smá með þetta mynstur;)








No comments:
Post a Comment
Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.