Wednesday, December 30, 2015

Róleg voru jólin

annað árið í röð hjá okkur Austfjarðapúkum. Enda ekki hægt annað þegar gamla settið og unglingur auk ferfætlinga eru í húsinu og ekki neinir gestir eða jólaboð á dagskrá...Við fengum þó minijólamatarboð seinnipart desembermánaðar í borginni hjá fólkinu okkar í smá uppbætur. Auk þess er þessi árstími sérstakur. Það vantar elsku tvíburasystur mína áfram og eftir því sem líður þá síast það alltaf smátt og smátt inn að það er ekki tímabundið ástand. Söknuður og sorgin fylgir mér áfram eins og skugginn, stundum stór en aðra daga minni.

Letin og rólegheitin voru því mikil og myndasmiðurinn "moi" tók bara ekkert rosalega margar myndir hér innanhúss af jólum en það var þó eitthvað.

 
 
 
 
 
 
 
Einfalt borðið og lítill vetrarskógur með seríum.
 
 
Þessar stærri kertakrúsir komu úr Rúmfó og held ég gæti alveg fjárfest í fleirum.
 
 
Zelda var slök eins og aðrir á heimilinu en það breytist eflaust þegar sprengjurnar byrja á morgun. Þá fer allt það litla hugrekki sem hún geymir í sínu hjarta.
 
 
Einkasonurinn var sérlegur aðstoðarkokkur. Hér var borðað seint því bóndinn var að vinna til átta um kvöldið og því ekkert stress á bænum.
 


 
 
 
Fastur liður að gæða sér á afgangs hamborgarhrygg á jóladag og umbreyta í nokkurs konar brunch.
 
 
 
 
Svo var hefðbundnari brunch á 2. í jólum...markmiðið var s.s. að borða mikið og meira og vera í rólegheitum og það gekk vel eftir, sérstaklega parturinn með að borða.
 
 
 
Á jóladag kom betra veður en á aðfangadaginn og þá skrapp undirrituð út með Zeldu í stutta göngu. Það var fallegt og stillt veður og rjúpur flugu um allt í kring eflaust fegnar því að hafa sloppið við það hlutskipti að enda ævina sem aðalréttar á aðfangadagskvöld á einhverjum heimilum ;)
 
 
 
Vonandi hafið þið átt góð og friðsæl jól sama hvar þið voruð stödd. Á morgun er síðasti dagur ársins og mikil læti voru hér í veðrinu í nótt og hefur verið sl.daga. Mikið vatnsveður og tjón í kring en Southfork slapp við skemmdir en afskapleg læti voru í veðrinu í alla nótt.
 
 
Takk fyrir innlitið kæru púkavinir :)

Saturday, December 12, 2015

Hugum að því sem koma skal og því sem er liðið



Þessi póstur snýst ekki um heimili, framkvæmdir eða kertastjaka. Hann er stuttur en snýst um að gefa sér tíma til að líta yfir farinn veg og velta fyrir sér því góða og slæma sem gerðist árið 2015. Áttir þú uppáhaldsdag, uppáhaldsminningu frá árinu? Hvað var erfiðast? Hverju lærðir þú að sleppa? Hvað ertu sátt/astur með? Hvað er framundan á árinu 2016 bæði það sem þú veist að nokkuð öruggt og það sem er óskrifað blað?

Hún "Súsanna" er bresk dama sem býr í London og heldur úti síðunni www.susannahconway.com. Ár hvert síðustu sjö ár hefur hún gefið út vinnubók sem kostar ekkert að ná sér í nema að komast í prentara. Þessi vinnubók kom til mín í ársbyrjun 2015. Ég gaf mér tíma og settist niður og fór yfir árið 2014 sem var eitt það erfiðasta sem hefur skollið á minni fjölskyldu og breytti lífinu að eilífu. Ég notaði þessa bók. Skrifaði ekki í hana allt í fyrsta kasti heldur gerði það smátt og smátt. Sumt gat ég klárað, en annað ekki.

Elsku Púkavinir - hvet ykkur til að kíkja á síðuna hennar og prenta út vinnubókina fyrir engan nema ykkur sjálf. Svo er líka hægt að lita nokkrar myndir eða "Mandölur" eins og svona mynsturhringir kallast, hverjum finnst ekki gaman að því að lita? ;)

 
Knús inn í helgina :)

Wednesday, December 9, 2015

Eldhús án jólaskrauts...

Myndir eru ágætis leið til að skjalfesta það sem þegar er vitað...það vantar allt jólaskraut í eldhúsið! Andinn hefur bara ekki verið yfir vötnum enda búið að færa og breyta og koma nýju fyrir og öðru út í Southfork eins og gerist hér oft. Þá fer allt á hvolf og jólaskreytingar verða eitthvað minimalískar...en reyni kannski/vonandi að bæta úr því um komandi helgi...eða nei þá þarf að klára ritgerð ;)

 
 
 
 
 
 
Þetta er nú afskaplega ójólalegt eldhús eins og stendur. Önnur jólin núna þar sem engilinn minn vantar. En jólaskreytiandinn kemur kannski i stærri skömmtum þegar líður á mánuðinn...kemur í ljós.
 
Knús á ykkur þangað til næst - skellti í pönnukökur í vonda veðrinu í vikunni sem var þó ekki vont á þessu svæði að neinu ráði. En allar afsakanir vel þegnar fyrir bakkelsi í kvöldmat;)
 


Sunday, December 6, 2015

Sunnudagurinn á eftir og undan óveðrinu

 
Sunnudagur er aftur mættur á svæðið og þá er kveikt á næsta kertinu sem kallast Betlehemkertið. Það fer varla framhjá þeim sem fylgjast með veðurfréttum eða horfa út um gluggana af og til að það er ýmist óveður á landinu eða það næsta á leiðinni. Þá kemur sér vel að eiga 578 kertastjaka á víð og dreif. Einhver skriffinsku leti í gangi þennan daginn og því læt ég bara fylgja með nokkrar myndir í dag og skrifa meira síðar.
 

 

 
 
 
 
 
 
 
 
 
Vona þið eigið góðan sunnudag hvar sem þið eruð stödd í veröldinni :)

Sunday, November 29, 2015

Fyrsti í aðventu...og fyrsti bloggpóstur í langan tíma


Þar sem ég er komin úr æfingu í bloggskrifum þá koma hér bara nokkrar myndir af aðventukransinum í ár ef krans má kalla. Þetta er nú sama uppsetning og var í fyrra með smá "twist"...til hvers að flækja hlutina?


 
 
 
Fjölskyldan er nýkomin heim frá Japan þar sem við heimsóttum litla bróður og yndislegu konuna hans í Tokyo. Ekki enn búin að sortera myndirnar frá Bali þegar næsta ævintýri tók við...eða svona næstum því.
 
En það verður víst eitthvað minna um ferðalög á næsta ári en aldrei að vita. Spennandi tímar og verkefni framundan hjá Austfjarðapúkunum og mögulega litast bloggið á næsta ári eitthvað af því...þeas. ef undirrituð getur hætt að taka sér svona ferlega langar pásur!
 
Knús á ykkur og segi bara velkomin aftur ef einhver þarna úti nennir að fylgjast með áfram :)