Sunday, November 29, 2015

Fyrsti í aðventu...og fyrsti bloggpóstur í langan tíma


Þar sem ég er komin úr æfingu í bloggskrifum þá koma hér bara nokkrar myndir af aðventukransinum í ár ef krans má kalla. Þetta er nú sama uppsetning og var í fyrra með smá "twist"...til hvers að flækja hlutina?


 
 
 
Fjölskyldan er nýkomin heim frá Japan þar sem við heimsóttum litla bróður og yndislegu konuna hans í Tokyo. Ekki enn búin að sortera myndirnar frá Bali þegar næsta ævintýri tók við...eða svona næstum því.
 
En það verður víst eitthvað minna um ferðalög á næsta ári en aldrei að vita. Spennandi tímar og verkefni framundan hjá Austfjarðapúkunum og mögulega litast bloggið á næsta ári eitthvað af því...þeas. ef undirrituð getur hætt að taka sér svona ferlega langar pásur!
 
Knús á ykkur og segi bara velkomin aftur ef einhver þarna úti nennir að fylgjast með áfram :)

5 comments:

  1. Vei velkomin aftur! Fallegur aðventukransinn þinn. Eigðu gleðilega aðventu!

    ReplyDelete
  2. falleg aðventuskreyting hjá þér og ánægjulegt að sjá þig aftur :)

    ReplyDelete
  3. Gaman að kíkja við - flott skreyting.
    kv Ása

    ReplyDelete
  4. endilega haltu áfram, gaman að fylgjast með þér :)

    kv. Kristín

    ReplyDelete

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.