Ungfrúin góða hefur verið fjarri góðu blogggamni að undanförnu vegna dásemdarferðar til Bali! Já þið heyrðuð rétt, ég fór til ægifögru eyjunnar Bali í Indonesíu og dvaldi þar í 2 vikur. Bali sem er þrjár flugferðir í burtu frá landinu og flugtími um 19 klukkustundir :)
Bali hefur lengi verið á óskalistanum mínum og ekki síst af því hún elskulega mamma mín fór þangað fyrir 19 árum síðan. Þá byrjaði hún að flakka um heiminn og hefur ekki hætt. Ferðabakterían er svo smituð yfir á undirritaða og hlakka til að geta haldið áfram einhvers konar flakki næstu áratugina:)
Mig langar að deila þessari upplifun með ykkur en það verður aldrei gert í einum pósti því mynd- og söguefnið er svo mikið. Þetta er því allt í vinnslu en þangað til þarf aðeins að byrja að breyta og skreyta hér heima enda alltaf nóg að gera.
Eigið dásemdar hvítasunnuhelgi kæru vinir. Skemmtið ykkur yfir júróvisjón eins og ég mun gera enda hin besta skemmtun:)
Risaknús elsku þið og takk fyrir innlitið.
No comments:
Post a Comment
Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.