Sunday, May 24, 2015

Hótelinnlit í Ubud

Ég ætla núna í næstu póstum að breyta aðeins útaf vananum kæru vinir. Í stað þess að birta myndir af framkvæmdum eða myndum af heimilinu hér í Southfork þá ætla ég að deila með ykkur ferðalaginu mínu til Bali.

Í þessu bloggi hef ég skrifað minna og birt meira af myndum enda veit ég að myndir segja gjarnan meira en mörg orð. Sjálf notast frúin við sína eigin Facebook síðu til að skrifa einstaka sinnum persónulegri pistla og deili þar ýmsu með vinum og vandamönnum. Með því móti hef ég farið út fyrir þægindarammann og deilt opinberlega mjög erfiðri líðan eftir hræðilegan missi sem ég hef lítið tjá mig um á þessum vettvangi. Viðbrögðin, stuðningurinn og hvatninginn við því hefur gert það að verkum að ég skrifa reglulega pistla...ekki flókna..bara örfáar línur um mikilvægi þess að við minnum okkur á að lífið er hverfult, það er stutt og hversu miklu máli það skiptir að við nýtum þetta líf okkar eins vel og við getum og gefum eitthvað af okkur í leiðinni.

Við þurfum nefnilega að gefa af okkur til að geta þegið gjafir tilbaka :)

 
Þá er spurning hvort púkabloggið megi ekki þróast aðeins samhliða því og fá líka inn nokkra pistla í þeim anda en ekki eingöngu myndir þó þær fylgi auðvitað með...þið kannski hugsið málið með mér?
 
Að þessu ofansögðu og með þetta allt í huga að lifa lífinu tvöfalt, nýta tækifærin sem berast og sitja aldrei uppi með eftirsjá framar ákvað ég að stökkva til! Ég stökk til og með stuttum fyrirvara skráði ég mig á Empower Women námskeið hjá Ósk og Sigrúnu Lilju. Námskeiðið var þó búið að kalla á mig síðan í haust og eins og mamma segir þá koma hlutirnir til okkar þegar við erum tilbúin til þess að taka á móti. Þær stöllur eru með síðu á Facebook og tækniklára ég hlýt að geta sett hér inn hlekk við tækifæri.
 
Námskeiðið sem varði í rúma viku og fór fram í hinni dulmögnuðu Ubud borg á Bali var fyrir mér síðbúin sorgarúrvinnsla og hvíld eftir erfitt ár. Námskeiðið fólst í því að læra að elska hvern? Jú sjálfan sig auðvitað! Við erum nefnilega ansi mörg þarna úti sem elskum allt og alla og sitjum svo á hakanum, lang aftast í röðinni á eftir húsverkum og vinnu. Við pössum upp á það að fara með bílinn okkar í skoðun en hversu oft sinnum við sjálfsskoðun og fáum nýjan límmiða þess efnis það sé búið að uppfæra okkur?
 
Ég dvaldi í 2 vikur á Bali og var tímanum skipt á milli námskeiðs en seinni hluti ferðar var notaður til að skoða mig um, dvelja á Róbinson Krúsó eyju sem kallast Gili Air og njóta, njóta og njóóóta :)
 
Meira um það síðar.

 
Einn daginn eftir hugleiðslu og jóga sem hófst alla morgna kl. 6 var farið í gönguferð. Í 10 mínútna fjarlægð frá lífinu í Ubud blasa við hrísgrjónaakrar, "sveit" og dásamlegt umhverfi. Í þessari gönguferð var ég svo heppin að fá að skoða nýtt og fallegt hótel þar sem litadýrðin og falleg hönnun var allsráðandi. Heimasíða hótelsins er hér.

 
 
Hér má sjá öðruvísi bekk.
 

 
 
 
Það væri nú ekki slæmt að vakna upp alla morgna við svona útsýni
 
 



 

 
 

 
 
Maður verður óskaplega auðmjúkur í svona fallegu umhverfi eins og Bali státar af, annað er ekki hægt.
 
 
 

Við erum aldrei of ung né gömul til að láta drauma okkar rætast. Draumar eru nefnilega markmið með dagsetningu. Látið draumana ykkar verða að veruleika, hugsið um þá, skrifið þá niður og vitið hvað? Þeir koma til ykkar og einn daginn gætuð þið mögulega vaknað á Bali :)
 


4 comments:

  1. En skemmtiegur og hvetjandi póstur, vona að þú laumir bara sem flestum svona með ásamt hinu :)

    ReplyDelete
  2. Dásamlegur póstur Væri til í að sjá fleyri svona pósta hjá þér falleg gullkorn fara vel með svona fallegum myndum.

    ReplyDelete
  3. Thetta var hressandi! Ekkert sma fallegt hotel. Eg elska thessa litasamsetningu....earthy en skaerir litir. Hlakka til ad heyra meira um Bali....You go girl!

    ReplyDelete

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.