Friday, April 3, 2015

Páskar...

Það eru víst að koma páskar. Föstudagurinn langi í dag og páskaegg bíða eftir að verða smökkuð.

Eins og mér finnst gaman að skreyta, breyta og græjast í húsinu þá hafa páskar ekki náð að festa rætur hvað varðar "decoration". Svo margt flott og fallegt sem margir eru að gera og ég sé páskaskraut í allskonar litum, ekki bara þessum hefðbundnu.

Kláraði því að skreyta í dag...korter í páska! Bara smotterí, ekki mikið en aðeins að reyna að fá inn einhverja vorstemmningu þegar það er snjór úti!








Litli Búdda og páskar...hví ekki? :)







Það s.s. glittir í páskana...vorlegir pasterlitir á stöku stað. Það glamrar í hömrum og borvélum á neðri hæðinni og verður víst eitthvað næstu vikurnar. Svo er ferðalag framundan. Ferðalag sem var ekki planað en átti að koma til mín. Stundum koma hlutirnir bara þegar við erum tilbúin til þess að taka við þeim. Það er ágætlega heimspekileg ástæða til að réttlæta hungurverkfallið hjá Visa kortinu:)

Hafið það sem allra best hvar sem þið eruð stödd :)

2 comments:

  1. Afar huggulegt hjá þér :)

    ReplyDelete
  2. Eg segi thad sama...mjog huggo hja ther. Gaman af ljosakronunni f. ofan sofann....Eg get endalaust skodad hja odrum.
    Kaer kvedja Brynja (Deco Chick)

    ReplyDelete

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.