Sunday, May 31, 2015

Keflavík - Ubud, Bali

 
Ferðlagið til Bali hófst þann 1. maí sl. snemma morguns. Auðvitað þurfti að koma sér í höfuðborgina sólarhring áður og tók því alls fjórar flugferðir til að komast á áfangastað. Elskulega flökkumamma mín sem fór til Bali fyrir 19 árum síðan og er nú vön að taka "flugvallarmyndina" var auðvitað stödd erlendis í þetta skiptið. Á þvælingi um Korsíku og Sardiníu og núna er hún farin til Frakklands á myndlistarnámskeið! Eins og ég sagði við ykkur...það er aldrei of seint að láta draumana rætast sama í hvaða formi þeir eru.
 
Elsku tengdapabbi fékk því hið merkilega hlutverk að smella mynd af mér á uppáhaldsstaðnum mínum Keflavík Airport :) Já undirrituð elskar flugvelli og vil helst vera komin 3 tímum fyrir brottför svo ég hafi nú góðan tíma ;)
 
Yndisleg kona að nafni Þorbjörg hjá Vita sá um að bóka fyrir mig flugið. Ég hefði vel getað gert það sjálf en hún bókaði þá töskurnar fyrir mig alla leið og því fékk ég bara einn "boarding pass" og ekkert vesen :)

 
 
Þetta útsýni er ávallt í miklu uppáhaldi :) Fyrsti leggurinn var Keflavík - Frankfurt.
 
 
 
Ég var ofboðslega þreytt þegar lagt var upp í ferðina. Var búin að vinna alltof langa daga, marga daga í röð fyrir brottför og sömuleiðis langþreytt eftir erfitt ár. Því þáði frúin ekkert nema vatnsglas og náði að sofa aðeins.
 
 
Í Frankfurt var 10 klukkutíma stopp...loveley! Ég var svo heppin að ferðast út til Bali með tveimur yndislegum konum sem voru með mér á Empower women námskeiðinu. Það var því lítið annað í boði en að setjast úti við torg í Frankfurt og fá sér smá hvítvín og eitthvað að borða. Það litla sem ég sá af borginni heillaði mig ekki mjög en þetta var ágætis stoppistöð á næsta áfangastað.
 
 
 
Þá var loks komið að flugferð nr. 2 sem var Frankfurt - Singapore. Við flugum með Singapore Airlines og mæli svo með því flugfélagi. Mjög góð þjónusta, dásamlega góður matur og fór bara vel um mann í rúmlega 12 klukkustunda flugi. Þarna glittir í hana Maríu ferðafélaga en hún færði sig yfir til mín svo við gátum setið saman og fengum sætaröðina útaf fyrir okkur :)
 
 
Smá flugvélaglaðningur frá Givenchy...sokkar og snyrtisett :)
 
 
Já og auðvitað matseðill og val um hvað hentar farþeganum best.
 
 
Nammigott...já frúin er líka með eindæmum hrifin af flugvélamat..sértaklega þegar ferðast er til Asíu :)
 
 
 
Alveg að verða komin til Singapore...12 klukkustunda samfleytt flugi að baki.
 
 
Morgunmatur að sjálfsögðu borinn fram...ekki síðri en kvöldmaturinn. Var ég nokkuð búin að minnast á það hvað mér finnst gaman á flugvöllum, í flugvélum og að borða matinn sem er boðið upp á?
 
  
Halló Singapore
 

 
Á flugvellinum er eitt stk. gróðurhús um víð og dreif. Dásamlega lifandi falleg blóm inni á vellinum. Þar má einnig finna sundlaug á efstu hæðinni fyrir þá sem þurfa að bíða lengur. Stoppið hér var bara rúmar 2 klukkustundir og þreytan aðeins farin að segja til sín.
 
 
 
Þá var það síðasta flugferðin til að komast á áfangastað...Singapore - Denpasar, Bali. Ég var svo heppin í stútfullri vél að fá nóg pláss og félagsskapinn af sjálfri mér í 2,5 flugferð. Það var bara ljómandi gott.
 
 

 
Alveg að verða komin og rúmlega sólarhringsferðalagi og um 20 tímar flugvél að ljúka...það var komið kvöld þegar við lentum á Bali og mér fannst eyjan taka svo glitrandi vel á móti okkur og ljósin öll svo falleg. 
 
 
Falleg smáatriði á herberginu mínu í Honeymoon Guesthouse í Ubud á Bali sem er í tæplega klukkustundar fjarlægð frá flugvellinum.
 
 
 
Fallega hurðin inn á baðherbergi :)
 
 
 
 Ég fór afskaplega þreytt að sofa en þó sérstaklega spennt að vera virkilega komin á leiðarenda. Bali er svo fjarlægur staður frá litla Íslandi en í raun nálægur á sama tíma. Þið þekkið það eflaust sem ferðist á framandi slóðir og komið á staðinn að kvöldi til, hversu spennandi það er að vakna næsta morgun og sjá umhverfið í dagsbirtunni. Það var því dásamlegt að vakna fyrsta morguninn og sjá að ég var sannarlega komin í paradís :)
 
 

3 comments:

  1. Takk fyrir að bjóða okkur með í flugferð, en mikið er ég nú heppin að búa 5 mín frá flugstöðinni, það styttir öll ferðalalög óneitanlega.

    ReplyDelete
  2. Jiii ég er sko með þér í að vera flugvalla og flugvéla elskandi! Fæ alveg fiðring af því að lesa þessa skemmtilegu færslu! Vona að við fáum að lesa meira!

    ReplyDelete
  3. very informative post for me as I am always looking for new content that can help me and my knowledge grow better.

    ReplyDelete

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.