Það er ekkert allt á kafi en það er snjór. Nóg af honum og kalt með. Þennan mánuð í fyrra rigndi stanslaust nánast alla daga og þá var vel svart úti, þá er nú snjórinn betri.
Svo bætir stundum í vindinn og þá sést ekki í fjöllinn eða fjörðinn út um eldhúsgluggann.
En svo stytta élinn upp um síðir og þá er útsýnis aldeilis fallegt. Eftir tæpan mánuð mun sólin ná að skríða þarna yfir fjöllin og senda nokkra geisla hingað yfir bæinn. Hér á Reyðarfirði fer sólin í nóvember og kemur ekki aftur fyrr en í febrúar, þannig að skugginn er langur og því er ómissandi að eiga 5.376 kerti!
Fyrir áhugasama þá heitir fjallið Hádegisfjall en það á ég eftir að klífa :)
Eigið góða helgi kæru vinir hvar sem þið eruð stödd.
No comments:
Post a Comment
Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.