Er byrjuð að sprikla aftur - í hóptímum á morgnana. Reyndar er bara einn tími búin en það tekur það enginn af manni :) Er týpan sem myndi ekki hreyfa mig ef ég þyrfti þess ekki. Fór aldrei handarhlaup í grunnskóla og stóð með hendur í vösum í íþróttatímum í menntó, er týpan sem kemst rétt á milli ljósastaura í hlaupi og hleyp þar af leiðandi ekki heldur "Labbi-Skokka" ég. Hreyfing hefur þó hjálpað mér, sérstaklega á erfiðu ári. Lyfta, púla og upplifa sig bara svolítið duglega að dröslast af stað...engar áhyggjur þetta mun ekki breytast í Hreyfingarblogg, aðrir sjá um það og gera það líka betur :)
Ég vona að einhver ykkar hafi útbúið sér krukku eins og ég talaði um í fyrri pósti og skrifi niður góðar minningar á litla miða og varðveiti. Eitthvað jákvætt á venjulegum og hversdagslegum degi.
Rakst á þetta dásamlega skjal sem ein flott kona sem ég þekki var að deila. Hvet ykkur til að kíkja á þetta :)
Þvottafjallið er enn í vinnslu, hálfnuð á toppinn ;) Þangað til þarf að úthugsa hvort þessi hér geti átt hlutverk á Heima-Vinnu-Office herberginu...oh júú hún mun fá makeover!
Takk fyrir innlitið kæru vinir og fyrir að gefa ykkur tíma til að kíkja hér við :)
Snilldarskjal!! Maður ætti nú að gefa sér tíma til að prenta þetta út og fylla svo út í rólegheitunum við kertaljós og með góðan tebolla :)
ReplyDeleteFlott hjá þér að vera byrjuð að hreyfa þig, einn tími er samt einn tími og þú mátt vera stolt af þér!
Og gordjöss kommóða...ef þú hefur ekki pláss fyrir hana þá máttu senda hana yfir á vesturlandið og ég skal alveg finna pláss...þarf kannski að henda kallinum mínum út en hann er sko ekkert á við góða kommóðu!! ;) Nei, bara grín ;) Hlakka til að sjá hvernig hún mun líta út!!
kv. Margrét Helga
Frábært að heyra Margrét Helga :)
ReplyDeleteLæt þig vita með kommóðuna en ætli flutningskostnaður yrði ekki dýrari en splunkuný kommóða...fylgifiskur þess að búa á landsbyggðinni;)
Já segðu...en kostirnir við að búa á landsbyggðinni eru bara svo miklu miklu meiri að manni dettur ekki í hug að flytja í þéttbýlið...a.m.k. ekki í höfuðborgina ;)
DeleteKv. Margrét Helga