Svo fást nú stundum blóm og túlípanar í búðinni og ég reyni að hafa reglulega blóm í vasa við myndina af fallega englinum mínum.
Kertið bara alveg í stíl við Herra Litla pínkuponsu Omaggio krúsina...þetta á nú ekki að breytast í merkjasnobbablogg en það er gaman að blanda einstaka dýrari hlut saman inn á milli Mister Ikea og Góða Hirðisins.
Framundan er Þorrablót Reyðfirðinga, eitt það skemmtilegasta sem sögur fara af. Því er best að haska sér í gang og undirbúa andlitssparslið og kíttisspaðana, krulla hárið og troða sér í kjól. Njótið kvöldsins og helgarinnar kæru vinir og gleðilegan bóndadag :)
Stilhreint og fallegt hja ther. Athugadi samt hvort thad se ekki adeins of mikid vatn a tuliponunum....
ReplyDeleteTakk fyrir það Brynja...hún Soffía bent mér einmitt á það, ég kann ekkert á blóm eða plöntur ;) :)
ReplyDelete