Tuesday, January 6, 2015

Gömul hurð

sem átti að henda fékk nýja eigendur og nýtt hlutverk.
 
 
Hún var "fallega" sjúskuð en þurfti þó smá lagfæringar og málningu. Ræðst mögulega á hana með meiri sandpappír svo hún fái aðeins grófara útlit.
 
 
 
 
Var hvít en máluð myntugræn sem virðist í fljótu bragði líka vera hvít á litinn
 
 
 
Skelltum henni upp á vegg í heima-skrifstofu-herberginu sem er í vinnslu og smá fegrun.
 

 
Liturinn sést betur á mótri hvítri hurð og listum
 
 
Heljarinnar korktafla í vinnslu sem má einnig hengja myndir á :) Má nota svona hurð á marga vegu td. sem rúmgafl, borð, stensla á hana orð eða mynstur og svo mætti lengi telja. Við byrjum amk. á korktöflunýtingu.
 
 
Meira síðar - takk fyrir innlitið púkavinir :)

No comments:

Post a Comment

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.