Sunday, July 21, 2013

Mynstur og smá litir

 
fá að njóta sín á home Office. Ákvað að prufa aðeins að nota Chevron mynstrið sem ég talaði um í gær og finnst það bara svolítið smart og venst, bara mjög einfalt og hægt að hafa í öllum regnbogans litum.

 
 
 
 
 Heimaskrifstofan er enn í mótun og akkúrat núna stödd á mjög "skemmtilegu" tiltektar-ákveða lúkk-flokka pappíra...æi bara hefðbundinn allt á hvolfi herbergi.
 
Þessi sunnudagur var annars dásamlegur (varúð..veðurupplýsingar)! Það var yfir 20 stiga hiti, blanka logn og algjör útlandastemnning. Svo mikil að frúin fékk sér glas af svona á Seyðisfirði.
 
 
Bless í bili:)
 

No comments:

Post a Comment

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.