Jú mikið rétt, frúin í Southfork er vöknuð eftir ágætis bloggdoða, það er nú bara eins og það er, stuðið kemur og fer og því um að gera að nota stuðtímann vel eða amk. segja frá því sem aðrir heimilismenn gera;)
Hef lítið sagt ykkur frá baðherberginu hér í húsinu, eitt af mörgum en eitt í einu dugar bara ágætlega.
Það er ekki tilbúið enn þar sem það fékk make over - aftur - um helgina þegar frúin var í burtu.
Fyrir myndir af panel-appelsínugula baðherberginu:
Junior handlangari hér að hanna í huganum;) Svipað pælingar með baðherbergi og eldhúsið, nota það sem var til eeeeen það eru alltaf undantekningar! Appelsínugulu græjurnar urðu bara að fara sem og panellinn og gólfdúkurinn og ýmislegt annað, bara so sorry;)
Eftir-mynd sem nú er aftur orðin fyrir-mynd;) Hér var búið að bæsa upprunalegu innréttinguna og lakka borðplötuna með sömu aðferð og í eldhúsinu, vaski skipt út en restin upprunaleg. Átti bara að vera svona í óákveðinn tíma.
Þessar eru víst líka orðnar fyrir myndir, aftur þökk sé framkvæmda bónandum...;)
En hvað haldið þið að gerist á ca. einni helgi?
:) :) :)
Work in progress...velja lit á vegginn, ljós og skreyta svo of course og birta svo aftur en ekki hvað.
Þetta verður því fyrir-eftir..fyrir-eftir baðherbergið mikla:)
Takk fyrir að kíkja við þrátt fyrir bloggleysi sl. vikur:)














Hvað hvað þetta er mikil breyting! Kemur ekkert smá vel út :D ég ætti kannski að fá bóndann þinn lánaðann og koma bóndanum mínum á óvart með smá make-óveri hérna í setrinu, eða allavega byrjun á make-óveri skulum við segja :)
ReplyDeleteknúsur! Djé
Geggjað flott :)
ReplyDeleteBóndinn er greinilega alveg að vinna fyrir kaupinu sínu!
VÁ! Má ég eiga manninn þinn? ;)
ReplyDeleteVááá!! nei má ÉG eiga manninn þinn?!?
ReplyDeleteJá þetta er sko geggjað hjá ykkur! Eru þetta gamlar innréttingar sem þið máluðuð og flikkuðuð uppá eða er þetta allt nýtt?
ReplyDeleteEn stelpur, ef mennirnir okkar eru ekki svona handlagnir, verðum við sjálfar þá ekki bara að fara að taka upp hamarinn og pensilinn?
Kveðja
Kristín Sig.
VVáááá.....
ReplyDeleteKv Ása
Þetta er geðveikt, ekki neitt smávegis munur. En þarftu að mála veggina. Þetta er flott eins og er núna. Þú ert heppin að eiga maka sem getur unnið svona góða vinnu.
ReplyDelete