Wednesday, August 14, 2013

I'm back babies:)

 
Komin heim í fjöllin eftir ofsalega gott frí sem var að mestu eytt á Álftanesinu fagra með viðkomu á Laugarvatni og alls konar fleiri stöðum. Góða veðrið mætti á suðurlandið og því hefur frúin nánast verið í góðu veðri í allt sumar, lovely:)

En hvað haldið þið að gerist í svona orlofi í kringum höfuðborgarsvæðið...jújú það er kíkt í nokkrar "dúllubúðir" og svo í aðeins fleiri!
 
 
Komnir smá litir, sá þessi fallegu kerti í Ikea og liturinn var svo flottur og poppar upp allt þetta hvíta enda sagðist ég ætla að fara að litavæða Southfork aðeins meira, en samt bara passlega;)
 
 
 
Svo var auðvitað farið í Góða Hirðfíflið þar sem minni stjakinn og litli teljósa fengu að rata ofan í körfuna.
 
 
"Áttu örugglega nóg af kertastjökum?" sagði einn bóndi hér á bæ með mjög sposkan svip! Held það tæki heilt kvöld að kveikja á öllum kertunum sem eru hér á víð og dreif...aðeins að undirbúa þegar dimman skellur hér á.
 
 
Er bara nokkuð ánægð með þessa útkomu á borðinu..hvítt, grátt og túrkisblátt...bara fallegt:) Löberinn var keyptur í sumar í gallerí á Seyðisfirði og heitir Lífsins Blóm og var innblásinn af gömlum blómateikningum ef mig minnir rétt.
 
Þið kannski hafið áhuga á að sjá aðeins meira innlit af stofunni og fleira smádóti á morgun?
 
Gaman að vera komin aftur...takk þið sem sýnið þessu bloggi áhuga og kíkið hér við, nóg af nýju/gömlu sætu smádóti sem þarf að deila með ykkur;)
 
 

1 comment:

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.