Saturday, November 10, 2012

Vetur


                                                         
Dagatalið segir byrjun nóvember sem í mínum kokkabókum flokkast enn undir haust, mögulega seinna haust;)

Hér á Reyðarfirði hefur hins vegar enginn þurft að gera annað en að líta út um gluggann til þess að átta sig á einu - það er komin vetur. Reyndar sást ekki út um gluggana fyrir viku síðan! Það var bara kósý, þá fengu nágrannarnir frið enda ekki komnar gardínur í eldhúsið.





Frúin lærði þó fljótt að hér kemur snjórinn, fer, kemur aftur og þetta endurtekur sig nokkrum sinnum þar til þetta hvíta festist alveg...finnst þó alveg nóg um núna og tel þetta vera aðeins í fyrri kantinum! Hins vegar þegar búsetan er í Austfirsku ölpunum þá bara fylgir þetta;)

Bíllinn er komin með nagladekk enda ekki annað í boði þar sem Southfork stendur ofarlega í bænum við langa götu sem kellan átti í góðri glímu við áður en dekkinn komust í vetrarbúning...úff ekki gaman!

Skólahald var fellt niður fyrir viku og frúin komst ekki í vinnu sökum ófærðar. Held það hafi ekki gerst síðan 199og eitthvað að slíkt hafi gerst hér á Reyðarfirði (ath. heimild ekki staðfest, innfæddir bara leiðrétti mig). Svona var umhorfs úti þann daginn, ljósin tilheyra bíl sem gerði heiðarlega tilraun til aksturs, festist á núll einni;)





Þessi mynd hér að neðan var tekin að kvöldi til, ljósin á myndinni eru útiljósin á húsi nágrannans, jább það er hús þarna!


En þetta gekk sem betur fer yfir, rigndi ofan í þetta þannig að garðurinn varð aftur nánast grænn, það sást amk. í grasið! Svo snjóaði aftur þannig nú er ekkert gras lengur sjáanlegt.



Framkvæmdir eru í fullum gangi hjá Bónda og Frænda. Sjónvarpsherbergi verður vonandi fljótlega að veruleika og þá er hægt að taka umbúðirnar utan af hvíta dúllusófasettinu sem var fjárfest í af konu Frændans, ótrúlega smekksamt fólk:)



Fer að skella inn nokkrum framkvæmdamyndum, sumar þarf mögulega að ritskoða;)

Þangað til að vorar þá notar frúin tækifæri og maxar upp kertafetishið, aldrei hægt að eiga nóg af kertum þegar úti er veður vont;)






Þangað til næst, Knús í bili - Austfjarðapúkar.

2 comments:

  1. Kósý í sveitinni :)
    Gaman að lesa blog frá þér frænka kær :)

    ReplyDelete
  2. Takk frænka mín..gaman að einhver nennir að kíkja hérna inn;)

    ReplyDelete

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.