Monday, November 26, 2012

Hnífurinn á háaloftinu


Það er háaloft í Southfork. Þessi hnífur, vel ryðgaður fannst þar við eftirlitsskoðun bóndans. Megið láta Arnald Indriða eða Yrsu vita ef þau vilja skrifa eitthvað um það;)

Eftir allar hryllingsmyndirnar sem frúin hefur séð sem og mjög takmarkað geðslag, þá er ekki sjens að farið verði þarna upp.

Bóndinn skellti sér hins vegar upp, ok klöngraðist upp stigann sem við junior héldum fast í;) Ástæða ferðalagsins var sú að fara upp og tengja/aftengja...æi það hafði eitthvað með snúrur að gera!



Svona lítur háaloftið í Southfork út ef einhver vill kíkja í heimsókn, nóg svefnpláss!!!



"Hurðin" að háaloftinu er staðsett í panelherberginu okkar. Þar er ljómandi fínn t-mömmubekkur eins og bóndinn kallar hann. Panelherbergið verður skrifstofa í framtíðinni, þangað til er það nákvæmlega eins og á þessari mynd flesta daga og fullt af dóti, mínus eitt stk. krakkagemlingur klifrandi í stiga.

Góðar stundir..knús frá Austfjarðapúkum;)



No comments:

Post a Comment

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.