Thursday, November 29, 2012

Kertaföndur með office kellum


Frúin er svo heppin að vinna með einstaklega skemmtilegum kellum á The Office. Eftir vinnu í dag skelltum við okkur saman á Stöðvarfjörð á Kaffi Stein. Þar tók hún Guðný á móti okkur og var með fullan sal af alls konar föndurdóti fyrir kertaskreytingar, myndir, límmiða, glimmer, borða og svo auðvitað límið sem enn situr fast á fingrunum þegar þetta er hamrað inn á tölvuskjáinn.

Frúin kann ekki að prjóna, ekki að hekla, teiknar hræðilega og málar enn verra. Er hins vegar nokkuð flink í andlitsmálningu aka make up á eigins fési en þar stoppar nú listagenið. Finnst þó gaman að föndra ef það er nógu basic og einfalt fyrir frúna sem eyddi öllum stundum í fatasaum í menntó að rekja upp allar buxurnar og pilsin...minnir að kennarinn hafi saumað þetta allt á endanum;)

Kvöldið var s.s. frábært, skemmtum okkur ægilega vel, hlustuðum á jólalög, fengum dásamlega súpu og salat og svo rjóma-sultu-kramarhús í eftirétt...úff þetta endar illa.

Hér koma myndir af afurðum kvöldsins - 3 kerti ( sjá mynd að ofan ). Kertið efst til vinstri var keypt alltof dýru verði í fínni búð í borginni. Hin þrjú sem frúin föndraði sjálf kostuðu öll jafnmikið ef ekki minna með efni og alles;)








Og svo smá silfursamsetning á bakkanum í eldhúsinu...



 

Kertaklikkun - I know;) Knús frá Ausfjarðapúkum.

1 comment:

  1. ég sá á Pinterest aðra aðferð við að setja myndir utan um kerti án þess að líma....
    Auður H Sig

    ReplyDelete

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.