Wednesday, November 28, 2012

Aðventa í eldhúsinu

Aðventan er víst að fara af stað um komandi helgi. Haustið kom og það er bara farið, jólaundirbúningur er að hefjast! Var einstaklega mikið jólabarn, fékk í skóinn til 16 ára aldurs og súkkulaðidagatal til 18 ára ef ekki lengur;) Svo kom smá Grinch í frúna sl. ár með löngum vinnudögum, skólastússi og tímaleysi. Er algjörlega á móti því að tala um jól í október en það er bara skoðun frúarinnar. Hins vegar hefur eitthvað gerst eftir búsetu hingað í fjöllinn og jólastúss smám saman að byrja fyrr.
 
Fjárfesti í alls kyns jólasmotterídóti í borginni núna í nóvember, þessi má nú reyndar hanga uppi eftir desember, þannig séð ekki merktur jólum;)
 
 
 
 
 
Jólagluggarnir eru s.s. komnir upp. Þeir koma frá mömmu en voru nú reyndar alltaf rauðir á mínu heimili í den þegar frúin var yngri. Mamma framseldi þá til dótturinnar fyrir 2 jólum síðan og fékk þá svona hvíta og fína - passa vel í hvíta æðið enda er frúin með ofnæmi fyrir öllu sem er rautt, nema kannski hárinu;) Einu skiptin sem eitthvað rautt er innanhúss þá er það í kringum jól, annars bara no no.
 
 
Gluggarnir eru tveir, vantar nú heilmynd af hinum - þeir koma í stað þess að hafa gardínur fyrir þessi jól, græja þær eftir áramót. Hér sjáið þið fallegu grænu marmaragluggakistuna í eldhúsinu;) Í stofunni er þær svo bláar!
 
 
 
 
Bless í bili - knús frá Austfjarðapúkunum:)

No comments:

Post a Comment

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.