Tuesday, August 21, 2012
Atttssjúúú...
Hiti, hálsbólga og kvef.is í mesta veldi er afleiðing fjallgöngu og ræktarskopps eða svona næstum því;)
Lagðist í rúmið hundveik eftir Esjugöngu og nú viku síðar komin á sýklalyf þar sem ennisholusýkingareitthvaðdót er mætt á svæðið. Búin að ganga ansi langt á wcpappírsbirgðar Vesturtúns og fleiri staða undanfarna daga. Yndislega skemmtilegt í orlofi.
Orlofstíma í borginni að ljúka og flogið austur í fyrramálið. Esjan, Menningarnótt, Laugarvatn, Stubbó og allar búðaferðirnar og fótboltastússið...tékk, tékk, tékk... Þá er bara hrista af sér kvefið og ógeðið og hefjast handa við að taka upp úr kössum og vinna í húsinu fram að næsta orlofi sem hefst 6. september með Skotlandsför...eins gott að græna slímið verði farið þá ojoj...:)
Bless í bili.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

No comments:
Post a Comment
Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.