
Jæja - búin að vera arfaslök að púkaskrifast. Skrifast það á vinnuannríki og umsjónarhlutverk í húsnæðisframkvæmdum;)
Allt búið að vera á rúi og stúi í nýja húsinu, naglar á gólfum, ryk og sag útum allt og ofsalega huggulegt allt saman...en þetta verður alveg ofsalega flott þegar þetta fer að smella, amk klárt fyrir jólin!
Ýmislegt búið að ganga á - wc sem var pantað frá Bauhaus var brotið í kassanum, frúin var send til þess að kaupa blöndunartæki í eldhús og valdi blöndunartæki sem eiga að fara á baðvask, Junior braut flís á baðinu þegar hann var að þrífa flísar...aðeins of ákafur í hjálpseminni og svona mætti alveg telja áfram.
En brúna gamla eldhúsið er orðið hvítt og gammeldags:) Vantar gólefni, borð og ýmislegt fleira en það kemur. Baðherbergið er líka að umbreytast úr appelsíngulu yfir í aðeins meira nútímalegra. Ekkert farin að gera fínt eða setja upp puntdót, það kemur seinna.
Þannig að myndir verða settar inn bráðum af eldhúsi og baði, fyrir og eftir að sjálfsögðu til heiðurs yfirsmíðameistaranum, Ingólfi sjálfum:)
En helst í fréttum fyrir utan húsamál er að frúin flýgur til Skotlands í fyrramálið með mömmu sinni:) Gistum í 2 nætur í tíbesku búdda - munkaklaustri! Já þið lásuð rétt, ég er á leið í klaustur en samt ekki bókstaflega;) Svo er ferðinni heitið til Glasgow þar sem farið verður í búðir, skoðuð söfn, og margt fleira....semsagt að deyja úr spenningi og á meðan eru kallarnir í friði til að vinna meira í húsinu, en ekki hvað!
No comments:
Post a Comment
Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.