Monday, August 13, 2012

Hálfnuð..

Jæja - þá er sumarfrí frúarinnar hálfnað. Tvær vikur eftir sem skiptast nokkuð bróðurlega á milli höfuðborgarsvæðisins og Austurlandsins.

Helginni var eytt að  mestum hluta í grenjandi rigningu á Laugarvatni. Frúin gat þó klárað nýjustu bókina, Hunger games og þarf víst að fjárfesta í framhaldinu til að lesa meira. Dagarnir þar á undan fóru m.a. í að þræða allar hardware búðir borgarinnar..Byko, Húsó, Bauhaus og margar aðrar sem eru minni.

Bóndinn flýgur austur í kvöld og bíður spenntur eftir að komast í húsið og byrja að setja upp skrautlista, flísaleggja, mála innréttingar og fleira spennandi.

Á meðan verðum við Junior fyrir sunnan þar sem klára þarf nokkra leiki í Íslandsmótinu í fótbóó, fara í Stubbó með mömmu, skoða gardínuefni, mögulega fara aftur í Ikea ( nýi listinn er alveg að koma!!!), menningarnótt, labb á Esjuna ef veðrið fer að skána og margt fleira.

Svo tekur við skemmtileg síðasta vika í orlofi sem fer í decoratation vinnu í nýja húsinu, mála meira og skreyta og gera fínt. Er komin með dellu fyrir allt sem heitir hvítt, gamaldags og romance hönnun á heimilum. Reyndar ekki nýtt, alltaf verið stíllinn en föst í brúna-sveita lúkkinu sl. áratug og nú verður aðeins létt á lúkkinu og breytt til þar sem fjárfest var í fasteign, án þess þó að húsið líti út eins og hvít einangrunarstöð;)

Nýtt æði er t.d. að nota Eurobretti - vörubretti sem maður sér um allar trissur..í búðum þar sem vörur eru geymdar á, úti við hús og þá aðallega hjá fyrirtækum. Búin að rekast á margar síður, íslenskar og erlendar sem sýna sniðugar hugmyndir. Miðað við öll brettin sem frúin hefur séð á Reyðarfirði er eflaust hægt að fá 1-2 stk. án endurgjalds og hægt að breyta í hillu eða borð eða botn fyrir rúm...fullt af hugmyndum:)

Skrítið samt að vera í sumarfríi í ágústmánuði. Búðirnar farnar að auglýsa "Skólavörur" og "Haustlínan komin í hús"! Á að banna svona fram í tímann hugsunarhátt fyrir okkur greyin sem fórum seint í sumarfrí þetta árið - ekkert ósvipað jólaumræðunni mörgum mánuðum of fljótt;)

Frúin er líka búin að föndra aðeins í útlitinu á síðunni ef einhver nennir að lesa eða kíkir hér inn. Þarf eitthvað að gera í gestabókinni svo allir geti skrifað, ekki bara google aðgangsfólk. Hefði átt að taka betur eftir í tölvunarfræðitímum í menntó í den...;)

Jæja, best að athuga hvort ekki sé hægt að hlaða meiri farangri á bóndann og vona að flugvélin beri það nú allt saman - góðar stundir:)

1 comment:

  1. Gaman að lesa hvað þið eruð að brasa í fríinu.
    Mitt frí er búið *búhú* en það er líka ágætt að komast aftur í rútínuna og klikkunina at the office ;)
    Hlakka til að sjá þig þegar þú kemur aftur
    og hver veit nema maður reyni að kíkja á þig í nýja húsinu fljótlega...

    ReplyDelete

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.