Wednesday, August 15, 2012
Esjan og ræktin
Í dag fórum við Junior upp á Esjuna já takk fyrir kærlega! Ekki alveg á toppinn en alveg nógu langt (3 tímar ) til að fá næstum blöðrur á fætur og fjólublátt andlit! Ótrúlega dugleg bæði tvö en fannst leiðin þó heldur brattari en blessað Stöðvarskarðið og það voru 6 tímar! Svaðalega hlýtt úti í dag og sluppum við rigningu og alles, smá þoka efst uppi. Esjan var á bucket listanum, aldrei farið og get núna strikað það út:)
Í gær var svo skoppast í tíma í Hress. Eins gott að hafa smá hreyfingu með öllu gotteríinu sem maður borðar í sumarfríi;)
Stefnan er tekin aftur á Laugarvatn í 1-2 nætur þar sem veðurspáin er góð, rigndi heldur mikið um síðustu helgi. 2 leikir eftir hjá Junior í Íslandsmóti og svo Stubbakot á mánudaginn með mömmu.
Best að láta staðar numið núna svo tengdó klári nú ekki allar lakkríssprengjurnar - bless í bili:)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

No comments:
Post a Comment
Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.