Jæja - nú er búið að flytja öll stór húsgögn upp í nýja húsið. Á bara eftir að fara með smádót og föt og þá er allt komið.
Þeir bræður (Ingólfur og Heimir) voru svo duglegir sl. mánudag að þeir fluttu þetta allt saman tveir á Subaronum hans Heimis og snjósleðakerran sem bóndinn smíðaði um árið var svo notuð til að ferja stóra dótið. Svo söngluðu þeir stanslaust. Semsagt engin flutningabíll kom við sögu þessara flutninga:)
Loftið á gangi og stofu sem var glansandi viðarpanell er orðið svona fallega hvítt, forstofan máluð og svefnherbergið orðið væmnislega fljólublábleikt. Málningarvinnan heldur svo áfram eftir sumarfrí.
Myndir koma inn síðar þar sem nettenging er ekki til staðar í húsunum þessa dagana.
Bóndinn er farin suður að fylgjast með Junior á Rey Cup mótinu sem er í gangi í Laugardalnum fram yfir helgina. Eftir situr frúin með ágætis verkefni: að klára að tæma leiguhúsnæðið og þrífa eitt stk. 150 fm. all by her lonesome! Reyndar búin með helming og blessað eldhúsið, það er nú alltaf verst og þá sérstaklega ofninn!
Sól og blíða en engin Bræðsla eða Franskir dagar þessa helgina heldur stórhátíðin Þrif og skil:)
Knús og góðar stundir.

No comments:
Post a Comment
Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.