Sunday, July 15, 2012

Mér finnst rigningin góð



Loksins, já ég skrifa og meina - rignir á Reyðarfirði! Grasið hér er allt orðið gult og í minni sögulegu fyrstu fjallgöngu sl. fimmtudag umbreyttist mjúkur mosinn yfir í kaktuslíkan gróður sem gerði það að verkum að það var ekkert sérstaklega mjúkt að setjast niður og hvíla sig;) Fjöllin eru meira að segja orðin þyrst.

Það tók sumarið fjögur ár að mæta á svæðið þar sem veðráttan sl. sumur hefur lýst sér í eftirfarandi = þoku! Frá hvítasunnuhelgi með inn á milli venjulegum dögum, er búið að vera yndislegt veður hérna. Svo gott að hitastig hefur verið frá 17 upp í 23 gráður :)

Hélt ég myndi seint dásama rigningu en það er ekki eingöngu fyrir blessaðan gróðurinn..nei, nei. Frúin kemur sér bara ekki í pökkunar/flutningsgír þegar úti er sól og bongó alla daga. Sem þýðir væntanlega að hér verður unnið af fullum kappi í dag, eða svona amk sett í einn og einn kassa;).

Hér eru nokkrar myndir sem voru teknar inni í húsinu, vona þetta raðist nú rétt því eins og margir vita er ég með eindæmum tæknióklár en þetta kemur allt saman. Það er nú flest heilt að innan í húsinu og upprunalegar innréttar frá 1975 með tilheyrandi orange lituðu baðherbergi og grænum marmaragluggakistum.















Á eftir að smella myndum af neðri hæðinni sem er rúmgóð og þar er líka herbergi bóndans, bílskúrinn með bílagryfju eða einhverju svona gati í gólfinu..Planið er svo að útbúa neðri hæðina til útleigu og verður Frændinn (Stebbi frændi bóndans) sérlegur ráðgjafi í þeim málum en hann kallar sig smið:)

Vona þið eigið góðan dag - hér verður nóg að gera :)

Ps - gaman að sjá hvort einhver sé nú að lesa þetta þannig þið megið endilega "kommenta":)

No comments:

Post a Comment

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.