Ný bloggsíða - nýtt hús!
Austfjarðapúkar ætla að prufa sig áfram á nýjum slóðum. Frúin hefur ekki skrifað í alltof langan tíma og nú er komin tími til þess að taka fram blað og penna...bíddu bíddu, ég meina lyklaborð og tölvuskjá og byrja glamrið.
Við erum búin að fá afhenta lykla og kaupsamningur verður vonandi kláraður fljótlega eftir helgi. Framundan er því heilmikil vinna enda margt og mikið sem þarf að gera við húsið jafnt innan sem utan en það tekur einhver x mörg ár og liggur víst ekkert á.
Þannig að dagarnir núna ganga út á að skoða síður eins og www.pinterest.com og howtochangeabighouseforverylittlemoney.is ;) Best að benda á að það er bóndinn sem liggur í þessum dúllusíðum, ekki frúin! Við ætlum að gera þetta svo agalega fallegt, allt hvítt og fjólublátt og bjútíful...eða svona næstum því ;)
Bóndinn fer í sumarfrí 26. júlí og flýgur þá suður til þess að fylgjast með Junior á Rey Cup spila með Álftanesi en eins og sum ykar ( gef mér það að einhver lesi þetta nú ) vitið, þá hefur hann verið í útlegð í Vesturtúninu í sumar:) Frúin verður í vinnu fram að verslunarmannahelgi og skundar þá suður. Verslunarmannahelgi þetta árið verður því eytt í Ikea og Bauhaus, ííhhaaaaa :)
Bless í bili :)



Guð á himnum hvað það verður gamana að fylgjast með ykkur hér! :)
ReplyDeleteOg ég sé að það er nóg pláss í garðinum ykkar fyrir tjald ef ég skyldi nú drífa mig austur einhverntíman ;)
Frænkuknús frá Skaganum :)
Ingunn
Endilega velkomin Ingunn - get víst ekki hafnað gestum sökum plássleysis;)Nú er sko komin pressa í að vera creative og skemmtilega skrifandi:)
ReplyDeletevá þetta er ekkert smá flott, þvílík öfund hér á bæ :P
ReplyDeletetil hamingju kæra fjölskylda, nú verður maður að fara að drífa sig í heimsókn :P
kv. Svanborg
Hlakka til að sjá þig Svanborg:)
ReplyDelete