Monday, July 16, 2012

Fjallageit

Frúin minntist á fjallgöngu sem hún skellti sér í sl. fimmtudag. Um var að ræða 6 klukkustunda göngu um Stöðvarskarð í 640 m hæð. Gengið er frá Stöðvarfirði yfir á Fáskrúðsfjörð. Aldrei farið í alvöru fjallgöngu áður!

Þetta var svo yndislega skemmtilegt og erfitt og því ekki að gera meira af þessu, ekki eins og það sé bara eitt fjall hér á svæðinu!

Frúin ætlar því að draga Junior og aðra sem nenna með í fjallgöngur (ef kalla má fjöll þarna á höfuðborgarsvæðinu) í ágústmánuði. Esjan er á to do listanum þó maður fari kannski ekki alveg á toppinn og svo er eitthvað sem heitir Úlfarsfell og annað sem er kennt við einhvern Helga.

Var einmitt að koma inn úr 1,5 klst. göngu með Zeldu. Enduðum í klettunum hérna fyrir ofan bæinn og horfðum niður á þorpsbúana, agalega góð með okkur;) Valið stóð um að pakka ofan í kassa eða fara út í sólina og auka við freknuforðann á andlitinu, ekki flókið. Kvöldmaturinn var svo ekki af verri endanum, skellti í vöfflur, held að fjallaloftið hafi eitthvað ruglað kellinguna...;)

Bóndinn er komin í vaktafrí og geri ráð fyrir að hann sjái bara um rest meðan við Zelda verðum uppi á fjöllum eða amk. á göngustígum:)

Junior er víst farin á "Hitt vatnið" = Hvaleyrarvatn með tengdó, Þórný Hörpu og Beethoven Birtu og mig grunar að þau fái sér sundsprett þar.

Bless í bili:)

No comments:

Post a Comment

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.