Saturday, November 1, 2014
Byrja aftur að blogga?
Byrja aftur að blogga - það er spurning?
Ég hef ekki sett neitt inn á þessa síðu í rúmt ár. Hún var jú upphaflega hugsuð fyrir fjölskyldu og vini sem vildu fylgjast með lífi okkar hér eftir að við fluttum austur. Svo þróaðist bloggið fyrst og fremst að því að fjalla um framkvæmdir á Southfork en það köllum við húsið okkar.
Framkvæmdir hafa verið margar og to do listinn lengist bara ef eitthvað er.
Svo á lífið það til að skella ýmsu fram sem þarf að takast á við og þá verða blogg um fallega eða sniðuga hluti, framkvæmdir eða bara allt og ekkert...hálf tilgangslausar. En kannski er ágætt að hafa svoleiðis hliðarsjálf og verkefni.
Ég ætla hugsa málið - langar óskaplega að komast af stað aftur og nýta mér nýjustu gjöfina mína, dásemdarmyndavél.
Hugs, hugs...hugs....:)
Friday, August 30, 2013
Orlofsrestin búin
Jæja já...sko orlofsrestin var tekin í kringum síðustu helgi og úr varð löng fríhelgi í höfuðstaðnum. Þar áður voru gestir og svo er bara svo ofsalega mikið að gera á Office og þá er bara ekkert blogg.
Var samt búin að smella nokkrum myndum en komst ekki af stað að birta þær.
Frúin bara varð, varð, vaaarð að eignast svona stóra, djúsí krukku eins og Dossa í www.skreytumhus.is á. Þar sem hefur verið krónískur skortur á sprittkertum í Krónunni hér í sveitinni þá var fjárfest í tveimur stórum pökkum frá Ikea og krukkan fyllt! Skrautmyndaramminn kemur svo frá Pier:)
Þessir tveir fallegu koníaksbrúnu kertastjakar fundust einnig í Pier, voru til í fleiri litum en þeir passa bara mjög vel inn í alhvíta eldhúsið. Bakkinn undir þeim kom frá Góða Hirðfíflinu eftir hvíta spreyumferð.
Þessi sjaki ( á tvo ) var brúnn og rauður, keyptur fyrir mörgum árum í Rúmfatalagernum. Hann fékk líka sprautun!
Gamli sjónvarpsskápurinn nýtur sín því áfram sem ágætis skrauthilla þarna að ofan þar til annað kemur í staðinn.
Orlofsþynnkan er enn í gangi en hér eystra er ljómandi fínt veður þrátt fyrir vonda veðurspá víða á landinu þessa helgina. Hér er verið að koma sér aftur í rútínu eftir að junior mætti á svæðið eftir sumarútlegðina sína. Vakna í skólann, lærdómur og allt sem þessu fylgir er bara allt í lagi;)
Hér er amk. búið að fjárfesta í Erikum þar sem haustið er tími frúarinnar ( sporðdrekans ) með tilheyrandi litabreytingum, myrkri og kertaljósum:)
Góða helgi
Monday, August 19, 2013
Kertakassi
Er ekki frá því að einhver orlofsþynnka sé í gangi? Alveg afskaplega þreytt þennan mánudaginn eftir officedaginn þrátt fyrir að vinnan hafi byrjað í síðustu viku...tekur tíma;)
Smelli þó inn því nýjasta í eldhúsglugganum - blómatrékassi sem ég nota sem...kertastjakakassa en ekki hvað!
Sunday, August 18, 2013
Sunnudags...
Hér í Southfork voru gestir í helgarheimsókn úr Hafnarfirði og því var ekkert bloggað. Líf og fjör í húsinu þegar fimm manna fjölskylda bætist í hópinn, bara gaman:)
En smá myndablogg úr stofunni sem náðist ekki að birta fyrir helgi...aðeins búin að bæta við/breyta með gráum litum og smá túrkisbláu áfram.
Er ofsalega ánægð með þessa fallegu glerkúlu sem fannst í Góða Hirðfíflinu.
Aðeins að litapoppa stofuna áður en könglar og haustskraut fer að týnast inn.
Og aftur er það eitthvað úr Góða Hirðfíflinu;)
Eigið góðan sunnudag, hér er náttbuxnaletifílingur og alveg spurning að leggja sig bara aftur!...Lúxusinn að vera í barnlausu húsi en juniorinn ( stóri unglingur ) kemur brátt aftur á svæðið eftir fótboltaútlegðina.

Wednesday, August 14, 2013
I'm back babies:)
Komin heim í fjöllin eftir ofsalega gott frí sem var að mestu eytt á Álftanesinu fagra með viðkomu á Laugarvatni og alls konar fleiri stöðum. Góða veðrið mætti á suðurlandið og því hefur frúin nánast verið í góðu veðri í allt sumar, lovely:)
En hvað haldið þið að gerist í svona orlofi í kringum höfuðborgarsvæðið...jújú það er kíkt í nokkrar "dúllubúðir" og svo í aðeins fleiri!
En hvað haldið þið að gerist í svona orlofi í kringum höfuðborgarsvæðið...jújú það er kíkt í nokkrar "dúllubúðir" og svo í aðeins fleiri!
Komnir smá litir, sá þessi fallegu kerti í Ikea og liturinn var svo flottur og poppar upp allt þetta hvíta enda sagðist ég ætla að fara að litavæða Southfork aðeins meira, en samt bara passlega;)
Svo var auðvitað farið í Góða Hirðfíflið þar sem minni stjakinn og litli teljósa fengu að rata ofan í körfuna.
"Áttu örugglega nóg af kertastjökum?" sagði einn bóndi hér á bæ með mjög sposkan svip! Held það tæki heilt kvöld að kveikja á öllum kertunum sem eru hér á víð og dreif...aðeins að undirbúa þegar dimman skellur hér á.
Er bara nokkuð ánægð með þessa útkomu á borðinu..hvítt, grátt og túrkisblátt...bara fallegt:) Löberinn var keyptur í sumar í gallerí á Seyðisfirði og heitir Lífsins Blóm og var innblásinn af gömlum blómateikningum ef mig minnir rétt.
Þið kannski hafið áhuga á að sjá aðeins meira innlit af stofunni og fleira smádóti á morgun?
Gaman að vera komin aftur...takk þið sem sýnið þessu bloggi áhuga og kíkið hér við, nóg af nýju/gömlu sætu smádóti sem þarf að deila með ykkur;)
Subscribe to:
Posts (Atom)











