Gleymdist að taka fyrir-mynd af kommóðunni en hún var brún áður en hún varð svona ljómandi fallega barbie bleik. Nú eru einnig komnar höldur á kommóðu og fataskáp en vantar að smella af nýjum myndum til að sýna það betur.
Viljið þið sjá hvað gamli brúni sjónvarpsskápurinn sem keyptur var í Tekk Company árið 2000 er bara svona líka fallegur hvítur og búin að mjókka í tvennt :)
Gamlir blúndukjólar sem við systur notuðum sem ungabörn :)
Þetta er bara að verða svona ljómandi fínt og mjög lukkuleg með það sem komið er. Ég bæti við fleiri myndum næstu daga en "demantahöldurnar" eru komnar á sína staði, svo vantar gardínur og allskonar meira sem hægt verður að nálgast í borginni um komandi mánaðarmót, mestmegnis óþarfa puntudót en þegar von er á stelpu í heiminn og foreldrar á þessu heimili kunna bara á strákastíl þá er gaman að leika sér aðeins með dúllerí og tilheyrandi.
Takk fyrir innlitið :)

rosalega fallegt herbergi <3
ReplyDeletekv. Svanborg
Takk fyrir Svanborg mín :)
DeleteÞað hefur ekki verið filma yfir myndavélinni og þessvegna þessi blámi ;) ;) ;) hahaha
ReplyDeleteSvo fallegt hjá ykkur ❤️
Kv: Sunna Dögg
Nei ekki í þetta skiptið Sunna - það var á símanum mínum manstu sem ég fékk í jólagjöf um árið frá Ingólfi. Uppgötvaði það ekki nema hálfu ári seinna eftir margar "blár" myndir ;)
ReplyDeleteSvo fallegt - enda er fátt eitt skemmtilegra en að dúlla við svona barnaherbergi :)
ReplyDeleteHlakka til að sjá meira!
Vá hvað þetta er æðislega fallegt! Góð hugmynd með sjónvarpsskápinn, kemur mjög vel út! Langar að vita hvar þú fékkst demantahöldur? ;)
ReplyDeleteKveðja Guðný Marta