Sunday, March 20, 2016

Allt fer á fullt...einmitt

Jæja þá!
Síðasti póstur var birtur og skrifaður í byrjun janúar. Það hefur svo sannarlega verið mikið og margt á fullu hér en að skila því í einstaka bloggpóstum...nei ekki alveg að gera sig greinilega.

Frúin hefur kannski "smá" afsökun. Bumbuvikurnar eru orðnar rúmlega 33 takk fyrir og því farið að síga á seinni hlutann. Orka og kraftur til að framkvæma, gera og græja kom seint og góð leti verið í gangi suma daga. Það hefur hins vegar breyst sl. vikur og nú er undirbúningur á fullu að taka á móti litlu prinsessunni með tilheyrandi eymslum og ó-ó aumingjavæli hjá gömlu kellu sem verður ofsalega aum í skrokkinum þegar mikið er í gangi bæði í vinnu og á heimili enda komin 17 ár síðan líkaminn var síðast notaður í þessum tilgangi ;)
 
Spurning hvort þið viljið aðeins sjá hluta af því sem hefur verið sýslað við hér að undanförnu og er svolítið bleikt en samt vonandi ekki of bleikt?
 


Sko...við færðum sjónvarpsherbergi fyrir jólin. Það er nú vistað þar sem skrifstofu-breytist í drasl herbergi - var áður. Því var ákveðið að barnaherbergi fyrir litlu prinsessuna yrði í gamla sjónvarpsherberginu. Sjáið til, þetta hús okkar Southfork var byggt í kringum 1975. Herbergið sem um ræðir voru einu sinni og líklega upphaflega tvö lítil aðskilinn herbergi sem var svo opnað á milli áður en við fluttum hér inn. Hentar mun betur svona í stað tveggja lítilla kústaskápa.

Svona var umhorfs þegar við keyptum Southfork. Síðan þá er búið að búa til vegg þar sem hurðir sem er fjær okkur er og eins var skápurinn á myndinni tekin í burtu og bóndinn græjaði innbyggðar hillur í staðinn, hurðir eru hér hvítar með listum eins og margir vita og núna hvarf græni marmarinn þökk sé Bauhaus filmum :)

 
En þá var bara að byrja - við máluðum hluta af þessu herbergi í sama lit og ganginn fyrir nokkrum árum, hreindýrabrúnn.




Svo þurfti að ákveða lit á veginn í staðinn fyrir þann brúna...
 
 
 

Svo fór gamli sjónvarpsskápurinn í snemmbúna megrun. Bóndinn sagaði skápinn í tvennt því hann var vel djúpur og ekkert verið notaður síðustu árin. Það voru því annað hvort haugarnir eða gefa honum annað líf bara, voru hlynntari þeirri leiðinni :)
 
Liturinn sem fór á veggina eftir nokkrar prufur heitir Londongrár. Ákváðum að blanda saman gráum, bleikum, hvítum og aðeins fjólublálitum tónum. Þetta verður stelpuherbergi með öllu tilheyrandi en það er ágætt að hafa veggina aðeins hlutlausari, amk. fannst okkur það koma bara vel út.
 
 
Búið að skella listum í kringum gluggana eins og eru hér á nokkrum stöðum.
 
 
Svona er liturinn í dagsbirtu...kemur bara vel út.
 
 
 
Framhald á morgun...? Já er það ekki bara...takk fyrir innlitið þið sem voruð ekki fyrir löngu búin að gleyma litla Púkablogginu :)




1 comment:

  1. Alltaf gaman að sjá póst frá þér! Spennandi tímar framundan og óó hvað maður getur verið þreyttur - þarf ekkert 17 ár á milli ;)
    Viiiirkilega fallegur litur - hlakka til að sjá meira!

    ReplyDelete

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.