Monday, March 21, 2016

Prinesssuherbergi í vinnslu

Þá höldum við áfram með myndarennslið...prinsessuherbergi í vinnslu. Hér má sjá hvað herbergið breytist mikið þegar komnir eru hvítir listar í kringum gluggana og eins búið að filma græna marmarann í burtu í gluggakistum eða sólbekkjum eins og sumir kalla víst. Það var snjór úti fyrir nokkrum vikum þegar sumar myndir voru teknar og því svona blámabirta á nokkrum myndum.

 
Gleymdist að taka fyrir-mynd af kommóðunni en hún var brún áður en hún varð svona ljómandi fallega barbie bleik. Nú eru einnig komnar höldur á kommóðu og fataskáp en vantar að smella af nýjum myndum til að sýna það betur.




 
 

 
 
 
Viljið þið sjá hvað gamli brúni sjónvarpsskápurinn sem keyptur var í Tekk Company árið 2000 er bara svona líka fallegur hvítur og búin að mjókka í tvennt :)
 
 
 
 
Gamlir blúndukjólar sem við systur notuðum sem ungabörn :)
 
 


Þetta er bara að verða svona ljómandi fínt og mjög lukkuleg með það sem komið er. Ég bæti við fleiri myndum næstu daga en "demantahöldurnar" eru komnar á sína staði, svo vantar gardínur og allskonar meira sem hægt verður að nálgast í borginni um komandi mánaðarmót, mestmegnis óþarfa puntudót en þegar von er á stelpu í heiminn og foreldrar á þessu heimili kunna bara á strákastíl þá er gaman að leika sér aðeins með dúllerí og tilheyrandi.

Takk fyrir innlitið :)

6 comments:

  1. rosalega fallegt herbergi <3
    kv. Svanborg

    ReplyDelete
  2. Það hefur ekki verið filma yfir myndavélinni og þessvegna þessi blámi ;) ;) ;) hahaha
    Svo fallegt hjá ykkur ❤️
    Kv: Sunna Dögg

    ReplyDelete
  3. Nei ekki í þetta skiptið Sunna - það var á símanum mínum manstu sem ég fékk í jólagjöf um árið frá Ingólfi. Uppgötvaði það ekki nema hálfu ári seinna eftir margar "blár" myndir ;)

    ReplyDelete
  4. Svo fallegt - enda er fátt eitt skemmtilegra en að dúlla við svona barnaherbergi :)

    Hlakka til að sjá meira!

    ReplyDelete
  5. Vá hvað þetta er æðislega fallegt! Góð hugmynd með sjónvarpsskápinn, kemur mjög vel út! Langar að vita hvar þú fékkst demantahöldur? ;)
    Kveðja Guðný Marta

    ReplyDelete

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.