Wednesday, June 19, 2013

Miðvikudagskvöld

 
Ég er týpan sem drep flest blóm og plöntur sama hvað reynt er. Grænir fingur hafa bara aldrei verið til staðar en nú er kannski breyting á....
 
því þessi fallega eldhúsorkedía er farin að blómstra aftur!!!:) Hún var keypt ca. mánuði eftir flutning inn í Southfork snemma síðasta haust. Svo í vor felldi hún öll blóm en auðvitað sprelllifandi. Litlir nabbar fóru að birtast og svo með sólinni sem var hér og allri birtunni í byrjun júní...bamm...svo falleg:) Nú er bara að krossa vonandi græna fingur að hinar tvær lifni við líka, þær virðast eitthvað dauflegri.
 
 
 
Annars bara kerti og rólegheit á þokulegu miðvikudagskvöldi.
 
 
 
 
 
 

Sunday, June 16, 2013

Sólarsunnudagur

 
Sólin er hátt á lofti þennan sunnudaginn á Reyðó. Hitinn tæpar 14 gráður og ekki ský á himni. Tilvalið að viðra aðeins sængur og rúmteppi. Vantar eitt stk. snúrustaur í fótboltavallargarðinn en þangað til er upplagt að nota svalirnar. Útsýnið er líka ekki af verri endanum:)


Junior er farin í útlegðina sína á Álftanesið fallega til tengdó og telur niður í fótboltakeppnisferð til Danmerkur í júlí með gamla liðinu sínu. Byrjaður að skora hægri vinstri, reyndar bara með vinstri löppinni en alsæll á gömlum heimaslóðum.

Bóndinn er að vinna alla helgina þannig við Zelda erum í þvottinum, hreingerningu og útiverudútli í góða veðrinu. Best að drífa sig út í labbi-skokk með dömuna.


Sólarkveðja:)
 
 

Saturday, June 15, 2013

Alls konar eitthvað

 
myndablogg af smotteríi hér úr Southfork.
 

Eitt af mörgum hjörtum á svæðinu.

 
Gleymdi fyrir-mynd af þessum...var gylltur og grænn, geymdur í búrinu fyrir árás spreybrúsans. Nýtist vel undir skart núna:)
 
 
 

Hnífurinn á háaloftinu sem fannst fyrr í vetur er komin í glerkúpladiskinn frá Góða H..smá sprey og bling, aðeins betri.

 
Jebbs...ennþá gardínulaust en bara alls konar annað komið í staðinn.
 

 
 
Alveg eins bakki og á litla sófaborðinu frá Blómaval/Húsasmiðjunni, bara stærri og hvítur.
 
Litli búddinn var keyptur í vor í Japan í fallegu musteri.
 
 
Góða helgi:)
 
 
 
 

Monday, June 10, 2013

Sumarið er komið á Reyðarfjörð

 
og vonandi smá líf í Púkasíðuna eftir gott, gott hlé. Held það sé ágætt að taka sér pásur af og til, datt alveg úr gírnum. Sýnist einhver hafa kíkt hér inn og vonandi haldið þið áfram:)
 
Bongóblíða í dag og gott að sitja úti á tröppum eftir dag á Office og njóta blíðunnar eftir fremur óspennandi veðurfar í Reykjarvíkurfríi sl. viku. Hitabylgja gengið hér yfir svæðið og líkt og Grænni áburðarþrumu hafi verið sturtað yfir allan gróður, var varla stingandi strá hér fyrir tæpum tveimur vikum.
 
 
 
 

Nýja "fettishið" eru hjörtu. Þau eru orðin nokkur talsins í Southfork, mögulega of mörg þannig að eitt varð að vera fyrir utan húsið, ekki pláss innandyra;)
 

 
 
 
Með sólarkveðju:)
 

 

Sunday, April 21, 2013

Ég fer í fríið...ég fer í fríið...ég fer í frííííiiiið:)

Púkasíðan er komin í rúmlega 2 vikna pásu.

Ástæðan, jú mikið rétt..Japans ævintýrið mikla með flakkaramömmu.


Hafið það gott þangað til, munið að nýta kosningaréttinn ykkar og vonandi ferðast og flakka eitthvað ef þið mögulega getið.



Knús knús:)