Tuesday, March 22, 2016

Blóm og borð

Vona ykkur hafi þótt innlit í barnaherbergið skemmtilegt. Það er enn í vinnslu, ekki tilbúið en er að taka á sig mynd. Svona til að viðhalda einhverri virkni þá kemur hér stuttur póstur en takið eftir...þriðja daginn í röð! Já sko mína - þreyta í líkamanum sem undirbýr komandi átök en þá er gott að notast við sófann og kvöldin og glamra aðeins á lyklaborðið.

Okkur vantaði nýtt sófaborð í stofuna. Komin með annan sófa í stofuna sem hún yndislega systir mín átti og nýtur hann sín betur þar en í sjónvarpsherberginu sem nú er orðið barnaherbergi...úff þetta er að verða of flókið:)

En við vorum búin að skoða þau borð sem voru til í verslunum og þegar frúin er með stíl sem er frekar gamaldags og sveitalegur samanborið við nýtísku-minimalisma sem er mjög fallega hönnun bara ekki í stíl við innvolsið hér þá var úrvalið ekki mikið. Og hvað gera bændur eða bóndi þá...jú smíða bara nýtt borð!

 
 
 
 
 
Það er ansi mikill lúxus að hafa einn sprelllifandi "Bubba byggir" hér á bæ sem er ekki lengi að gera og græja og virðist aldrei skorta hugmyndir eða kraftinn. Ég læri kannski að smíða bara seinna;)
 
Takk fyrir innlitið kæru vinir.
 
 
 

Monday, March 21, 2016

Prinesssuherbergi í vinnslu

Þá höldum við áfram með myndarennslið...prinsessuherbergi í vinnslu. Hér má sjá hvað herbergið breytist mikið þegar komnir eru hvítir listar í kringum gluggana og eins búið að filma græna marmarann í burtu í gluggakistum eða sólbekkjum eins og sumir kalla víst. Það var snjór úti fyrir nokkrum vikum þegar sumar myndir voru teknar og því svona blámabirta á nokkrum myndum.

 
Gleymdist að taka fyrir-mynd af kommóðunni en hún var brún áður en hún varð svona ljómandi fallega barbie bleik. Nú eru einnig komnar höldur á kommóðu og fataskáp en vantar að smella af nýjum myndum til að sýna það betur.




 
 

 
 
 
Viljið þið sjá hvað gamli brúni sjónvarpsskápurinn sem keyptur var í Tekk Company árið 2000 er bara svona líka fallegur hvítur og búin að mjókka í tvennt :)
 
 
 
 
Gamlir blúndukjólar sem við systur notuðum sem ungabörn :)
 
 


Þetta er bara að verða svona ljómandi fínt og mjög lukkuleg með það sem komið er. Ég bæti við fleiri myndum næstu daga en "demantahöldurnar" eru komnar á sína staði, svo vantar gardínur og allskonar meira sem hægt verður að nálgast í borginni um komandi mánaðarmót, mestmegnis óþarfa puntudót en þegar von er á stelpu í heiminn og foreldrar á þessu heimili kunna bara á strákastíl þá er gaman að leika sér aðeins með dúllerí og tilheyrandi.

Takk fyrir innlitið :)

Sunday, March 20, 2016

Allt fer á fullt...einmitt

Jæja þá!
Síðasti póstur var birtur og skrifaður í byrjun janúar. Það hefur svo sannarlega verið mikið og margt á fullu hér en að skila því í einstaka bloggpóstum...nei ekki alveg að gera sig greinilega.

Frúin hefur kannski "smá" afsökun. Bumbuvikurnar eru orðnar rúmlega 33 takk fyrir og því farið að síga á seinni hlutann. Orka og kraftur til að framkvæma, gera og græja kom seint og góð leti verið í gangi suma daga. Það hefur hins vegar breyst sl. vikur og nú er undirbúningur á fullu að taka á móti litlu prinsessunni með tilheyrandi eymslum og ó-ó aumingjavæli hjá gömlu kellu sem verður ofsalega aum í skrokkinum þegar mikið er í gangi bæði í vinnu og á heimili enda komin 17 ár síðan líkaminn var síðast notaður í þessum tilgangi ;)
 
Spurning hvort þið viljið aðeins sjá hluta af því sem hefur verið sýslað við hér að undanförnu og er svolítið bleikt en samt vonandi ekki of bleikt?
 


Sko...við færðum sjónvarpsherbergi fyrir jólin. Það er nú vistað þar sem skrifstofu-breytist í drasl herbergi - var áður. Því var ákveðið að barnaherbergi fyrir litlu prinsessuna yrði í gamla sjónvarpsherberginu. Sjáið til, þetta hús okkar Southfork var byggt í kringum 1975. Herbergið sem um ræðir voru einu sinni og líklega upphaflega tvö lítil aðskilinn herbergi sem var svo opnað á milli áður en við fluttum hér inn. Hentar mun betur svona í stað tveggja lítilla kústaskápa.

Svona var umhorfs þegar við keyptum Southfork. Síðan þá er búið að búa til vegg þar sem hurðir sem er fjær okkur er og eins var skápurinn á myndinni tekin í burtu og bóndinn græjaði innbyggðar hillur í staðinn, hurðir eru hér hvítar með listum eins og margir vita og núna hvarf græni marmarinn þökk sé Bauhaus filmum :)

 
En þá var bara að byrja - við máluðum hluta af þessu herbergi í sama lit og ganginn fyrir nokkrum árum, hreindýrabrúnn.




Svo þurfti að ákveða lit á veginn í staðinn fyrir þann brúna...
 
 
 

Svo fór gamli sjónvarpsskápurinn í snemmbúna megrun. Bóndinn sagaði skápinn í tvennt því hann var vel djúpur og ekkert verið notaður síðustu árin. Það voru því annað hvort haugarnir eða gefa honum annað líf bara, voru hlynntari þeirri leiðinni :)
 
Liturinn sem fór á veggina eftir nokkrar prufur heitir Londongrár. Ákváðum að blanda saman gráum, bleikum, hvítum og aðeins fjólublálitum tónum. Þetta verður stelpuherbergi með öllu tilheyrandi en það er ágætt að hafa veggina aðeins hlutlausari, amk. fannst okkur það koma bara vel út.
 
 
Búið að skella listum í kringum gluggana eins og eru hér á nokkrum stöðum.
 
 
Svona er liturinn í dagsbirtu...kemur bara vel út.
 
 
 
Framhald á morgun...? Já er það ekki bara...takk fyrir innlitið þið sem voruð ekki fyrir löngu búin að gleyma litla Púkablogginu :)




Thursday, January 7, 2016

Allt fer á fullt

Einkasonurinn er farinn aftur í borgina og sama dag komu hér óvænt leigjendur á neðri hæðina sem áttu ekki að koma fyrr en 1. febrúar! Síðustu tveir dagar hafa því verið annasamir með eindæmum svo vægt sé til orða tekið að græja nokkurs konar orlofsíbúð sem átti að nýta janúarmánuð allan til að stússast í. Bóndinn hefur verið við sama heygarðshornið á einhverju orkutrippi sem virðist ekki hverfa þegar kemur að framkvæmdum. Það var ákveðið að loka neðri hæðina af og gera hana að sér íbúð með möguleika til útleigu og var þeirri hugmynd þjófstartað í gær. Því verða íbúar þarna niðri til loka apríl og þá styttist í að næsti íbúi birtist sem nú leigir eina bumbu og verður líklega með fastan leigusamning á heimilinu til amk. næstu 18 áranna.
 Jólaskrautið er farið niður í kassa en jólatrénu verður fleygt út um helgina en skrautið af því er farið þannig það stendur bara eins og illa gerður hlutur í stofunni þangað til. Eins og það er hlýlegt og gott að hafa allt sem fylgir jólum og skrauti þá er ég líka ósköp fegin að losna við það. Hafa aðeins einfaldara yfirbragð og stílhreinna þó nóg sé nú eflaust hér af smádóti en smekkur er misjafn sem betur fer:)

 
Klæjar í lyklaborðið að panta mér fallega dagbók fyrir árið 2016. Er og hef alltaf verið sjúk í dagbækur og að skrifa niður. Það eru tvær íslenskar sem hafa verið vinsælar undanfarið. Önnur þeirra fæst á síðunni www.munum.is og er hönnuð af tveimur íslenskum ungum konum og byggist á því að hafa jákvæða sálfræði að leiðarljósi. Bókin er búin að vera svo vinsæl að hún víst uppseld en von er á nýrri prentun enda með sniðug og hvetjandi orð á síðunum eins og sjá má og greinilega markaður fyrir svona bók.
 
 
Af hverju var ég ekki búin að hanna mína eigin dagbók fyrir löngu síðan,hafandi svona gaman af dagbókum? Note so self : Vera vakandi fyrir hugmyndunum þegar þær koma upp í kollinn, annars bara fara þær á næsta stað þar sem viðtakandinn er tilbúin til þess að taka við þeim ;)
 
Svo er önnur íslensk sem heitir Tíminn minn 2016 búin að vera til sölu að undanförnu líka m.a. hjá Eymundsson og víðar.
 
 

Sjálf er ég agalega skotin í dagbókinni hennar Jennifer Jones sem er með skipulagsblogg og er hrifin af litum og skemmtilegheitum til að poppa upp allt skipulag sjá hér.
 
 
Hún er jafnframt með sölusíðu á Etsy og hægt að panta vörur frá henni þar.
 
Fleiri týpur er svo hægt að sjá á síðunni Erin Condren og af nægu að taka.
 
 
Hugsa málið, mögulega verður splæst í eina svona "útlenska" tegund, enda margar svo flottar. Hafið það gott þar til næst og takk fyrir innlitið :)



Friday, January 1, 2016

Nú er það hafið

 
Nýja árið 2016 er mætt á svæðið. Ég tek því fagnandi og í fyrsta sinn í tæp tvö ár er einlæg gleði yfir nýju ári. Þetta nýja ár felur í sér nýtt upphaf, nýja von og ekki síst nýtt líf.
 

 
Ég vona þið gefið ykkur tíma til að setjast niður í einrúmi, með pappír og penna eða eitthvað tæknilegra ef það hentar stílnum betur og hugleiðið hvað koma skal. Ég er ein af þessum sem er afskaplega hrifin af listum og gerði á tímabili lista yfir alla listana mína! Það hefur sem betur fer lagast og nú mætti ég vera duglegri við að halda mig við to do listann í stað þess að gera marga og klára ekki. Mér finnst þó gaman að velta því sem framundan er aðeins fyrir mér og skrifa það niður. Einhver sagði einhvern tímann og margir hafa hermt eftir að óskrifaðir draumar séu ekki markmið heldur bara draumar...hljómar skynsamlega. Ég þarf að skrifa hlutina niður, alltaf þurft og mun alltaf gera.
Með penna.
 
 
En munið þetta. Nýja árið gefur ykkur annað tækifæri. Það er ekki sjálfgefið að fá annað ár. Nýtið það skynsamlega með passlegum skammti af vitleysu, annars væri lífið svo óskaplega leiðinlegt.
 
 
To do listinn fyrir Southfork er ansi langur, virðist oft styttast en svo bætist bara annað við en þannig virka hlutirnir þegar DIY og heimilisbreytingar eru gerðar af þeim sem búa á heimilinu en ekki bara aðkeyptum sérfræðingum þó það sé auðvitað nauðsynlegt stundum.
 
 
Næst á dagskrá í húsinu....ohhh svo margt. Þið verðið bara vera dugleg áfram að fylgjast með :)
 
 
Takk fyrir innlitið og gleðilegan nýjan nýársdag :)