Tuesday, March 22, 2016

Blóm og borð

Vona ykkur hafi þótt innlit í barnaherbergið skemmtilegt. Það er enn í vinnslu, ekki tilbúið en er að taka á sig mynd. Svona til að viðhalda einhverri virkni þá kemur hér stuttur póstur en takið eftir...þriðja daginn í röð! Já sko mína - þreyta í líkamanum sem undirbýr komandi átök en þá er gott að notast við sófann og kvöldin og glamra aðeins á lyklaborðið.

Okkur vantaði nýtt sófaborð í stofuna. Komin með annan sófa í stofuna sem hún yndislega systir mín átti og nýtur hann sín betur þar en í sjónvarpsherberginu sem nú er orðið barnaherbergi...úff þetta er að verða of flókið:)

En við vorum búin að skoða þau borð sem voru til í verslunum og þegar frúin er með stíl sem er frekar gamaldags og sveitalegur samanborið við nýtísku-minimalisma sem er mjög fallega hönnun bara ekki í stíl við innvolsið hér þá var úrvalið ekki mikið. Og hvað gera bændur eða bóndi þá...jú smíða bara nýtt borð!

 
 
 
 
 
Það er ansi mikill lúxus að hafa einn sprelllifandi "Bubba byggir" hér á bæ sem er ekki lengi að gera og græja og virðist aldrei skorta hugmyndir eða kraftinn. Ég læri kannski að smíða bara seinna;)
 
Takk fyrir innlitið kæru vinir.
 
 
 

1 comment:

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.