Monday, July 6, 2015

Það fer að koma meira blogg

Og þannig týnist tíminn!

Hef bara ekki með nokkru móti gefið blogginu tíma að undanförnu. Það eru enn um 15.000 óbirtar myndir frá Bali sem bíða dagsins ljós og á meðan hamast bóndinn við að stússast á neðri hæðinni.

Í gær voru svo liðnir 16 mánuðir frá því lífið fór á hvolf og elskulegi engillinn minn kvaddi. Allri sorg og öllum missi fylgja því miður ekki hleðslubatterí sem hægt er að setja á tankinn þegar allur kraftur og orka fer. Maður svífur bara á um á lítilli hleðslu og reynir að gera sitt besta í smáum skrefum. Stundum er maður svo bara batterílaus og finnur ekki hleðsluna sína.

En það fer að koma líf inn á síðuna aftur þið sem hafið ennþá nennu og áhuga að kíkja hér inn:)

Þangað til þá gerist ég bara svo tæknivædd að benda á "Instagrammið" mitt. Held ég heiti þar sigrunthorarins og skelli þar inn myndum af og til ef einhver vill fylgjast þar með. Hver segir að maður geti verið með of marga samfélagsmiðla í gangi í einu? 

Knús knús þangað til næst :)

1 comment:

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.