Mig langar til að deila með ykkur eftirfarandi pósti eða "umsögn" sem ég skrifaði inn á Empower Women retreat síðuna á Facebook. Fyrir áhugasama um ferð til Balí eins og ég fór í þá hvet ég ykkur eindregið til þess að skoða síðuna á Facebook. Þetta er hefðbundin "Like" síða og eiga allir að geta flett henni upp.
Nota bene - hef sjálf engra hagsmuna að gæta að benda konum á þetta námskeið og þessa ferð. Væri þó ekki verra að vera á prósentum haha:) Það er bara svo dýrmætt að geta heyrt frá einhverjum sem farið hefur í svona ferð. Það hjálpaði mér töluvert þegar ég ákvað að taka stökkið og fara til Balí! Ein til Balí á námskeið með ókunnugum konum sem ég hafði aldrei hitt áður, að gera hvað? Læra elska sjálfa mig, uppgötva gamla drauma og markmið? Hvernig í ósköpunum gat ég réttlætt það fyrir familíunni eða Visa kortinu! Jú vitið þið hvað, það þurfti bara ekki að réttlæta neitt og mun ég að eilífu lifa á þessari ferð...svo heimsæki ég Balí aftur síðar, get lofað ykkur því:)
Fyrir rétt rúmlega ári síðan fór veröldin mín eins og ég hef alltaf þekkt frá fæðingu á hvolf. Fótunum var gjörsamlega kippt undan manni og á einum degi varð allt breytt að eilífu því hún elskulega yndislega, fallega tvíburasystir mín var farin. Nýr og breyttur veruleiki tók við sem fylgir manni alla daga. Ég sór þess eið að minnast elsku systur minnar að eilífu með ýmsum hætti. Einnig lofaði ég s...jálfri mér og ekki síst henni að ég myndi gera allt sem ég mögulega get til þess að lifa lífinu af tvöföldum krafti fyrir okkur báðar. Lífið er nefnilega svo óheyrilega stutt og við þykjumst stundum vera ónæm fyrir því að eitthvað geti breyst hvað þá að horfast í augu við þá staðreynd að við höfum þegar á botninn er hvolft, afskaplega takmarkaða stjórn á lífinu.
Með þetta allt í huga þá er ég nýkomin heim úr einhverri stórkostlegustu ævintýraferð sem ég hefði getað farið í. Ég fór til Balí á Empower women námskeið hjá yndislegu Sigrúnu Lilju og Balí Ósk núna í maí. Þvílíkir gullmolar þar á ferð. Tilgangur minn með ferðinni var fyrst og síðast síðbúin sorgarúrvinnsla og langþráð hvíld eftir hræðilega erfitt ár. Ég var búin að sjá auglýsinguna frá því síðasta haust en var engan veginn tilbúin þá enda stutt liðið frá miklum missi. Samt sem áður þá var þessi staður og ferð ávallt í huga mínum og ég gat ómögulega sleppt tökunum á því að ég ætti að fara, ég hreinlega yrði að fara!
Svo gerist það í vor að ég ákvað að taka stökkið og bókaði ferðina. Bókaði með stuttum fyrirvara og hugsaði svo: "Hvað í ands...ertu nú búin að gera?". En þá var ekki aftur snúið og allt fór á flug við undirbúning. Á námskeiðinu kynntist ég einhverjum fallegasta hópi demtanta sem fyrirfinnast og verð ég að eilífu þakklát fyrir að hafa fengið þær inn í mitt líf og myndað langvarandi vinatengsl. Það er nefnilega svolítið magnað en satt að hlutirnir koma til okkar þegar þeir eiga að koma.
Að fara í vatnshreinsun hjá heilögum kvenkyns presti, að sjá fórnirnar sem eru færðar alla morgna, að fá einkatíma hjá spákonu sem hitti beint í mark, að sjá litadýrðina og gleðina, að komast í nudd fyrir 700 kr., að vakna við morgunhljóðin í Ubud, að vera umvafinn yndislegum hópi kvenna sem komu allar í ferðina með mismunandi sögur sem þó ná að tengjast og sjá og dvelja á einhverjum fallegustu stöðum sem ég hef komið á. Ég dvaldi á Bali í tvær vikur og fór á flakk eftir námskeiðið með annarri dásemdar demtanagyðju og heimsóttum við m.a. eyjuna Gili Air þar sem paradís og Róbinson Krúsó áhrif mætast með dash af kókóshnetusafa og kokteilum.
Hljómar þetta spennandi?
Það eru nefnilega allir kennarar sem koma inn í lífið okkar. Sumir fylgja okkur lífið á enda, aðrir stoppa stutt við. Þessir aðilar hafa þó sama hlutverkið og það er að kenna okkur, sýna okkur og skilja eitthvað eftir hjá okkur. Það er svo okkar að taka það til okkar sem við á. Við berum ein ábyrgð á okkar veruleika, líðan og lífi og enginn annar. Við getum valið hvernig viðhorf við komum með inn í daginn og það hefur áhrif á allt um kring. Við getum ekki stjórnað öllu, stundum þurfum við bara að sleppa tökunum og sjá hvað gerist. Oftast gerist nefnilega eitthvað stórkostlegra en við gátum ímyndað okkur.
Elsku yndislegu gyðjur - ef einhver þarna úti er að hugsa um ævintýraferð eins og þessa þá segi ég bara eitt - Ekki hika eitt andartak! Hlustaðu á innsæi þitt, farðu, upplifðu dulmagnaða stemmingu undir handleiðslu dásemdar kvenna sem hafa svo mikla visku og þekkingu fram að færa. Farðu út fyrir þæginda-rammann, treystu á eigin styrkleika og þú munt aldrei aldrei sjá eftir því :)

No comments:
Post a Comment
Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.