Það glittir í gardínur frá Mister Ikea. Get ómögulega ákveðið hvernig klæða eigi gluggann. Er enn að venjast þeim en sá á samanburðarmyndum hvað er tómlegt án þeirra. Spurning að smella af í dagsbirtunni og fá heildarmynd á þetta? Hef þó augastað á "sérsmíðuðum" úr bæjarins fínni búðum gardínum...en þessi púkafrú vill fremur spandera í flugmiða en gardínur:)
Hélt að vorið væri komið. Það var rjómablíða hér eystra um helgina en nú snjóar og blæs og kvöldfluginu aflýst. Þessi dásemdarvetur má fara að hypja sig, er alveg komið með meira en nóg.
Þá er nú aldeilis gott að eiga 5.734 kertastjaka miðað við nýjustu tölur frá Hagstofunni og kynda aðeins upp í kofanum.
Bless í bili :)
Mér sýnist sænski kærastinn vera alveg að gera sig þarna í stofunni, enda er hann sjaldan að klikka þessi elska :)
ReplyDeleteÖss....og maðurinn minn "kvartaði" um daginn að við ættum....eða ok, ÉG ætti alveg heila 250 kertastjaka!! Ég má greinilega bæta í, er sko ekki að standa mig ;)
ReplyDeleteGardínurnar koma vel út hjá þér...var einmitt með svona þunna gardínuvængi þar sem ég bjó áður og þetta gerði helling þótt þær gerðu í raun ekki neitt til að hemja birtuna inni (var með svona screen gardínur frá þeim sænska einmitt, til að loka sólina úti).
Kv. Margrét Helga (af vesturlandinu)
Alltaf gaman að líta inn til þín (blogg) Takk fyrir þig :)
ReplyDeleteTakk fyrir að gefa ykkur tíma til að kvitta...svo gaman að sjá að einhver nenni að kíkja hér inn :)
ReplyDelete