Eeennn svona inn á milli framkvæmda, fermingarstúss og aumingjaveikinda hjá frúnni þá er nú alveg hægt að smella af nokkrum símamyndum og skella hér inn.
Skilti úr Sirku sem á eftir að finna samastað.
Smá hjartarammabling úr Pier, vantar bara krúttlega mynd í hjartað.
Neðri hæðin er öll að fíniserast...hreindýrabrúni er komin á veggina á móti hvítu og flísar komnar á gólf...hvað á svo að gera við allt rýmið þarna niðri, það á eftir að koma í ljós...bóndi og Junior vilja poolborð..hmmm;)
Útsýnið úr eldhúsglugganum á Southfork er ekki slæmt.
Takk fyrir að kíkja við:)











flott allt saman, segðu mér hvar færðu pappírinn í rammann?
ReplyDeleteMikið hlakkar mig til að koma til þín í saumó! Ég verð að mæta xtra snemma til að fá full detail túr um húsið! Gaman að sjá að gömlu "góðu" litirnir eru að týna tölunni.. hehe :)
ReplyDeleteKveðja, Harpa.
Flott hjá þér eins og vanalega. En mig langar að vita hvaðan þú fékkst þetta fallega skilti "Bless your home..... mig dauðlangar í eitt. Ég kíkti á Sirku-vefverslun en fann ekkert þar?
ReplyDeleteÉg keypti það í sjálfri búðinni fyrir ca. 2 vikum. Átti óvænt erindi norður á Akureyri og kíkti inn í búðina í leiðinni og kom út með nokkra hluti;) Sirka er líka með síðu á Facebook, þar voru myndir af fullt af fallegum skiltum um daginn.
ReplyDeletePappírinn í rammanum er bara skrapp pappír sem ég keypti fyrir nokkrum árum í Office One eða álíka búð:)