Saturday, March 9, 2013

Alls konar í gangi..

Bloggleysi er ekki sama og framkvæmdaleysi - aldeilis ekki! Þvert á móti verið nóg að gera og hápunktur síðustu viku var módelhlutverk frúarinnar á skemmtikvöldi hjá flottustu hárstofunni á Reyðarfirði, alveg óskaplega gaman að vera með rauðbleikt hár og grænþemaða förðun, í fatnaði frá Arfleifð og með skart frá Sign...víúvíú...bíð eftir að tilboðin streymi inn:)
 
Af Southfork framkvæmdum er þetta helst í fréttum:
 
fyrir-eftir, fyrir-eftir baðherbergið er orðið kalkgult á litinn, kemur bara vel út amk. að mati okkar íbúanna hér í Southfork. Fleiri myndir birtast þegar skreytingu er lokið, ljósauppsetning og sitthvað fleira:)
 

En það hefur ekki bara eitthvað verið baukað inni á baðherbergi sl. daga heldur verið smíðað og málað í því herbergi sem nú er formlega komið með vinnuheitið "Heima-skrifstofa" :)


Og svo aðeins föndrað til að setja línuna með litaval á heima-skrifstofuna góðu. Mögulega blátt þema í öllu sínu veldi, túrkis og allt þar á milli.

 
Bara aaaaðeins byrjuð að skreyta, það er svo miklu skemmtilegra en að þrífa allt sag og taka saman draslið eftir smíðavinnuna, hvað þá að kíkja niður í þvottahús, nei hættu nú alveg;)

 

Junior er á fótboltamóti á Akureyri í lánsskóm því auðvitað skildi hann skópokann með nýju..nota bene...nýju takkaskónum eftir heima! Farin akútferð og fjárfest í skóm því hinir eyðileggjast tveimur dögum fyrir mót! Svo blasti skópokinn við frúnni þegar hún kem heim af Office í gærkvöldi..fékk einhverjar pílur frá bóndanum að þetta væri "ofmæðrun" um að kenna, sjáum til hvort guttinn læri af þessu eður ei, virtist amk. ekki trufla hann mikið að vera skólaus;)

Hafið það gott um helgina - 3 vikur í ferminguna...úffúff...:)




No comments:

Post a Comment

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.