Wednesday, February 13, 2013

Fermingarstúss

Heilsan er smám saman að skána hjá frúnni en pensilín er bruðið til þess að vinna á ennisholu og kinnaholubólgusýkingum með tilheyrandi stíflum og krónískum verkjum í höfði;) Þó ekki misst úr vinnu en svona á mörkum þess að hafa verið með meðvitund suma dagan en þetta er að lagast.

Meðan heilsan er ekki í toppformi þá liggja bloggfærslur, myndatökur og framkvæmdir niðri.

Það er þó ýmislegt annað í gangi en að reyna skreyta og vinna í húsgarmi.


Ferming einkasonarins er framundan í lok mars og búið að panta fermingarkerti, servíettur og sálmabókina! Þegar jakkafötin verða komin í hús þá er restin pís of keik! Veislur verða tvær, lítið og sætt kaffiboð hér í fjöllunum á skírdag og svo grillfermingarveisla fyrstu helgina í júní á Álftanesinu. Fermingarjunior samþykkti þessa hugmynd og lækkaði þá stressstuðullinn hjá mömmunni um 10000000 stig;)

Þemað verður blátt og fótbolti en ekki hvað.


Framundan er svo vetrarfrí hjá junior í næstu viku þar sem hann fer í útlegð til ömmu og afa á Álftanesinu fagra. Frúin skreppur eflaust líka og reynir þá að nota ferðina í sma sjopping leiðangur, fermingar- og ekki fermingartengt:)

Bless í bili og passið að verða ekki kvefuð:)


No comments:

Post a Comment

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.