Sunday, April 21, 2013

Ég fer í fríið...ég fer í fríið...ég fer í frííííiiiið:)

Púkasíðan er komin í rúmlega 2 vikna pásu.

Ástæðan, jú mikið rétt..Japans ævintýrið mikla með flakkaramömmu.


Hafið það gott þangað til, munið að nýta kosningaréttinn ykkar og vonandi ferðast og flakka eitthvað ef þið mögulega getið.



Knús knús:)
 
 

Tuesday, April 16, 2013

Smotterí

 
Myndablogg að kvöldi til...rafstöðin að klárast hvað varðar skrif og smá heilabrot með uppsetningu á púkasíðunni...væri nú betra ef maður kynni almennilega á þetta...ekki láta ykkur bregða ef síðan verður á hvolfi og á japönsku næstu daga.
 

 
 
 
 
 
 

Monday, April 15, 2013

Krónur og aurar

Þegar maður býr svo órafjarri höfuðstaðnum þá eru færri tækifæri til þess að skreppa í "lífsnauðsynlegar" búðir. Reyndar fór frúin ekkert mikið í búðir meðan á þeirri dvöl stóð, nokkuð viss um að búðarferðunum hafi hreinlega fjölgað eftir flutninginn austur!
 
 
Í smá skreppitúr í höfuðstaðinn fyrir stuttu var búð heimsótt sem hefur ekki verið sótt heim í ooooooofsalega langan tíma...jessöríbob...Góði Hirðirinn, var hreinlega búin að gleyma að hún væri til!
 
 
Heilar 200 kr. fyrir þennan krúttlega sæta poka:) Finnst hann vera svolítið í Skreytum hús stílnum hennar Dossu (www.skreytumhus.is) enda með eindæmum mikill fagurkeri þar á ferð...
 

 
Já, já..eldhúsgardínur, hvað er nú það? 
 
 
Fann svo þennan líka fína glerkúpulsbakkathingy...fyrsti í safninu:) Verðmiðinn hálfkroppaður af þarna hægra megin. Mjög líklega, pottþétt, alveg mögulega mála'ann eða sprey'ann hvítann eða greyish en þangað til er hann bara flottur svona á viðarplatta..verðmiðinn er reyndar farin af núna;)
 

Bíð spennt eftir næstu klinkferð í Hirðinn góða:)


Sunday, April 14, 2013

Gangið í bæinn


Skiltið góða úr Sirku fékk fastan samastað...í forstofunni og unir sér bara vel þar.



Spurning að poppa upp kommóðuna við tækifæri, nýjar höldur mögulega..hm? Held hún megi ekki við því að verða hvíttuð...ágætt af hafa smá balance..mikilvægar að klára gardínumál fyrir eldhúsgluggann...to do listinn bara lengist og lengist.

Njótið sunnudagsins vonandi í slökun og rólegheitum - hér er það helst á dagskrá plús eitt stk. fótboltamót.



Saturday, April 13, 2013

Flakk og ferðalög

Úbbs...er einhver búin að taka eftir því að púkasíðan hefur verið ansi óvirk? Vonandi þá er amk. einhver sem kíkir hér inn;)

Ástæðan er ca. þessi: Á 10 daga tímabili stóðu þessir viðburðir yfir í Southfork....Ferming einkasonarins með tilheyrandi undirbúningi og gestagangi, páskar með tilheyrandi gestagangi og svo til að toppa allt saman 14 ára afmæli fermingarjunior!

Multitasking er ofsalega fínt og flott orð og á við flestar konur sem frúin þekkir, vafalaust einhverja karla líka...en kæra púkasíðan hefur bara verið sett til hliðar því það var bara enginn orka eftir í rafstöðinni;)

Annað sem truflar aðeins núna en er þó mun meira spennandi....


Já mikið rétt, frúin er fara til Japans...eftir 9 daga takk fyrir kærlega! Elskuleg flökkumamma frúarinnar verður með vatnslitamyndalistarsýningu á Hoikkado eyju, rétt hjá Sapporo borg þar í landi. Litli bróðir frúarinnar býr auk þess í landinu með sinni gullfallegu konu og undirrituð fer með kellunni sem aðstoðarkona:)

Áhugamálin felast ekki bara í því að skreyta Southfork og mynda dauða hluti og raða og bjútígera umhverfið þó það sé svo gaman, heldur er flökku- og ferðaþráin búin að smitast frá mommy dearest yfir til dótturinnar sl. ár:)

Frúin fór með flökkumömmu sinni til London vorið 2010. Þá var ákveðið að stefna að því meðan heilsa og fjárhagur leyfir, að fara saman á 2 ára fresti eitthvert erlendis í nokkurra daga ferðir.

Haustið 2012 fóru kellurnar svo saman til Skotlands. Við eyddum 2 dögum í tíbesku búddamunkaklaustri, jábbs í Skotlandi, af öllum stöðum! Svo var haldið til Glasgow og gert það sem hefðbundinn ferðamaður ( ok margar/ir gera )...verslað og verslað... Með því að heimsækja þetta klaustur þá varð samt vinkillinn á ferðinni allt annar og svo miklu, miklu innihaldsríkari en bara að sjá H&M að innan amk. að mati undirritaðrar!


Frúin með einni af nunnunum ( ekki bara búddamunkar, þær bjuggu auðvitað á öðrum stað ). Fengum að hjálpa henni að kveikja á 104 kertum sem kveikt er á daglega í Butter Lamp Tree House.

Nota bene...frúin er ekki búddisti eða sérstaklega trúrækin, parturinn af þessari heimsókn var að gera eitthvað algjörlega öðruvísi og það tókst svo sannarlega:)


Ef þið hafið tök á...ferðist, kannið heiminn, sleppið aðeins tökunum á örygginu og því sem flokkast undir vana...við sjáum líklega mikla meira eftir því sem við gerðum aldrei en því sem við gerðum:)

Risaknús...Austfjarðapúkar á ferð og flugi:)