Þegar maður býr svo órafjarri höfuðstaðnum þá eru færri tækifæri til þess að skreppa í "lífsnauðsynlegar" búðir. Reyndar fór frúin ekkert mikið í búðir meðan á þeirri dvöl stóð, nokkuð viss um að búðarferðunum hafi hreinlega fjölgað eftir flutninginn austur!
Í smá skreppitúr í höfuðstaðinn fyrir stuttu var búð heimsótt sem hefur ekki verið sótt heim í ooooooofsalega langan tíma...jessöríbob...Góði Hirðirinn, var hreinlega búin að gleyma að hún væri til!
Heilar 200 kr. fyrir þennan krúttlega sæta poka:) Finnst hann vera svolítið í Skreytum hús stílnum hennar Dossu (www.skreytumhus.is) enda með eindæmum mikill fagurkeri þar á ferð...
Já, já..eldhúsgardínur, hvað er nú það?
Fann svo þennan líka fína glerkúpulsbakkathingy...fyrsti í safninu:) Verðmiðinn hálfkroppaður af þarna hægra megin. Mjög líklega, pottþétt, alveg mögulega mála'ann eða sprey'ann hvítann eða greyish en þangað til er hann bara flottur svona á viðarplatta..verðmiðinn er reyndar farin af núna;)
Bíð spennt eftir næstu klinkferð í Hirðinn góða:)






No comments:
Post a Comment
Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.