Það styttist og styttist...fjórar vikur í settan dag og batteríin eru að tæmast. Frágangur í vinnu og skrifstofutiltekt eins langt og það nær. Magnað hvað maður telur sér trú um að geta farið frá tómu borði og "klárað" allt, það er víst aldrei svoleiðis. Svo rúllar skipið alveg áfram og siglir þó mann vanti um borð en það er stundum ágætt að halda að maður sé ómissandi ;)
Undirrituð og bóndinn voru í borginn um nýliðna helgi. Tíminn var auðvitað notaður í gæða samveru með einkasyninum sem var hér um páskana og hafði því ekki tíma til að sakna foreldranna í þetta skiptið, svo stutt á milli hittinga :) En einnig þurfti að koma við í Ikea og Rúmfó og jújú blessaða Bauhaus sem var okkar annað lögheimili þegar mestu framkvæmdirnir voru hér fyrir 2 - 3 árum.
Bleika prinessuherbergið er allt að smella. Fyrir utan gardínur þá vantar í raun bara bleiur og barn og þá er þetta komið! Daman mun þó sofa fyrst um sinn inni í svefnherbergi í fallegri vöggu sem er á leiðinni hingað austur frá dásemdar frænku. En þar sem hér er nægt pláss er gaman að dúllast í þessu herbergi og hafa líka rúmið tilbúið þegar þar að kemur.
Vona þið eigið gott kvöld framundan hvar sem þið eruð stödd og látið ekki ástand þjóðmálanna hér skemma fyrir ykkur innri frið, skreytinga- og framkvæmdagleði...þið munið að það þarf ekki að kosta miklu til. Bara einn spreybrúsi og hægt er að umbreyta gömlu í nýtt :)

Farðu nú vel með þig og njóttu <3
ReplyDelete