og var þar í heila fjóra daga :) Borgarbúinn ég sem er búsett á landsbyggðinni til næstum 7 ára verður reglulega að komast suður, það er bara svoleiðis.
Var á fullu eins og venjulega út og suður. En var róleg í innkaupum fyrir Southfork. Labbaði inn í Pier og Ilvu og kom út með ekki neitt og mjög þakklátt Visa kort :)
Keypti reyndar gardínustöng og gardínur í stofuna...hvítar, blúndulegar en veit ekki alveg hvort ég sé að fíla þær, þarf mögulega bara venjast. Skelli inn myndum og einhverju Southforktengdu síðar í vikunni.
Þangað til knús knús í kuldanum :)

Skil þig vel...ég er reyndar uppalin í sveit og bjó í borginni í 11 ár þangað til ég fékk alveg nóg af því að búa þar og flutti aftur í sveitina ;) Finnst samt voðalega gaman (og bráðnauðsynlegt) að fara þangað reglulega...kortið mitt er samt yfirleitt ekki jafn þakklátt og þitt kort var núna ;)
ReplyDeleteKv. Margrét Helga